23.06.2009 09:15
Fjörureið á FM
Í tengslum við Fjórðungsmót 2009 verður boðið uppá fjöruferð um Löngufjörur, föstudagskvöldið 3. júlí. Mæting í reiðina er föstudagskvöldið 3. júlí kl. 20:00 á Kaldármelum og kl. 21:00 á Snorrastöðum.
Löngufjörur ná frá Hítarnesi vestur að Búðum og eins og fjölmörgum hestamönnum er kunnugt um er þar mjúkt undir fæti og unun að spretta úr spori í skeljasandinum.
Það er því ekki úr vegi að fara að huga að því að taka hrossin með á Fjórðungsmót. Mæting í reiðina er föstudagskvöldið 3. júlí kl. 20:00 á Kaldármelum og kl. 21:00 á Snorrastöðum.
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 2322
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 4666
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 937650
Samtals gestir: 49497
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 21:51:34