31.05.2011 21:15

Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir landsmót


Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir landsmót verður laugardaginn 11. júní og sunnudaginn 12. júní á félagssvæði Þyts.

Keppt verður í tölti opnum flokki, B-flokki, í 1. og 2. flokk, A- flokki, 1. flokk, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki og  100 metra skeiði.

Skráningargjöld eru 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.

Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein.

Athugið að hægt er að greiða skráningargjöld beint inná reikning 1105-26-1081 kt: 550180-0499

Skráningar má senda á e-mail: thytur@hotmail.com, síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 7. júní 2011.



Mótanefnd
Flettingar í dag: 956
Gestir í dag: 65
Flettingar í gær: 779
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 966521
Samtals gestir: 50587
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 23:50:57