04.08.2011 22:01

Síðsumarsýning kynbótahrossa á Hvammstanga

Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga þriðjudaginn 23. ágúst nk. að er fram kemur í tilkynningu frá Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda.

"Dómar verða þriðjudag og miðvikudag og yfirlitssýning fimmtudag 25.ágúst. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir.

Best er að senda skráningar á tölvupósti - rhs@bondi.is  - en einnig má hringja í síma 451 -2602. Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 18. ágúst.

Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, fullnaðardómur eða bara bygging eða hæfileikar, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru.

Gjald er 15.000 fyrir fullnaðardóm en 10.500 ef bara annað hvort bygging eða hæfileikar. Greiðist inn á banka 307-26-2650 (kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á rhs@bondi.is með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða. Kynnið ykkur vel reglur um járningar, spattmyndir, dna ofl.

Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur."

Flettingar í dag: 671
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 3243
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 961499
Samtals gestir: 50297
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:50:04