15.11.2011 20:58

Fullt hús á Hrísum 2

Það er nóg að gera í tamningum á Hrísum þessa dagana. Búið að fylla húsið að hrossum frá öðrum og í þeirra eigu, alls 25 stykki. Tamningartryppin eru m.a. undan Roða frá Múla, Aðli frá Nýjabæ, Akk frá Brautarholti, Gandálfi frá Selfossi, Hvessi frá Ásbrún, Nema frá Grafarkoti, Huginn frá Haga, Fróða frá Staðartungu og fleiri góðum. Gréta á Fitjum er að temja með þeim núna, hún er með tvo fola sjálf, annar þeirra er efnilegur stóðhestur undan Ballerínu frá Grafarkoti og Krák frá Blesastöðum. Einnig er Gunnar stórbóndi sérlegur ráðgjafi og eftirlitsmaður búsins. Þannig að það er fjör í Fitjárdalnum!! :)

Yndislega veðurblíðan sem hefur verið núna undanfarna daga gerir þeim kleift að hafa hrossin mikið úti í nokkrum útivistarhólfum fyrir utan hesthúsið.

Frændurnir Hljómur frá Sauðárkróki og Vörður frá Sauðá               -              Hrollur og Stuðull komnir inn.





Flettingar í dag: 752
Gestir í dag: 53
Flettingar í gær: 779
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 966317
Samtals gestir: 50575
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 15:57:38