16.01.2013 10:18

Þorrablót í Þytsheimum

Ágæta hestafólk.

Hvernig væri að koma saman laugardagskvöldið 26. janúar 2013, kl. 19:00 - 23:00 í Þytsheimum. Hver kemur með sinn þorramat eða mat og drykk að eigin vali og eigum saman skemmtilegt kvöld í leik og spjalli, öll fjölskyldan.

Þar sem við þurfum að greiða leigu fyrir Þytsheima verður aðgangseyrir kr. 500, - 14 ára og eldri emoticon

Væri ekki tilvalið að dusta rykið af höfuðfötum, húfum og höttum  og mæta með á blótið.

Sjáumst hress og kát emoticon

Hestakonur.
 

Flettingar í dag: 2624
Gestir í dag: 65
Flettingar í gær: 3243
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 963452
Samtals gestir: 50334
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 18:39:30