10.02.2013 15:05

Þrautabraut, smali og skeið verða í

Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi  17. febrúar kl. 13.00

 

Keppnisgreinar eru:

1. – 3. bekkur þrautabraut
4 – 10. bekkur smali
8. – 10. bekkur skeið

 

Skráningar þurfa að hafa borist fyrir
miðnætti miðvikudaginn 13. febrúar á
netfangið:   thyturaeska@gmail.com

Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa, nafn hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein.

 

Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu,    

500 kr fyrir næstu skráningar    og skal greiða á  staðnum áður en mót hefst

(ekki tekið við greiðslukortum).

smalabraut 4. – 10. bekkur

Þrautabraut 1.-3. bekkur

 

Reglur keppninnar eru:

 Þrautabraut 1. – 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Fyrri hringurinn 3 metrar í ummál, þar skal stöðva hestinn og halda svo áfram.

Smali 4. – 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast  2x4  sekúndur við. Ef tunna dettur er bætt við 4 sekúndum og ef tunnu er sleppt bætast við 4x4 sekúndur. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn. Ef hleypt er yfir pallinn bætast við 4x4 sekúndur.

 

Skeið 8. – 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.

#  Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.

#  keppni í skeiði er með fyrirvara vegna veðurs og aðstæðna á hvejum stað

Við reynum að finna tíma í reiðhöllinni í vikunni til að setja upp brautina svo krakkarnir geti æft sig.

Flettingar í dag: 2376
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 4666
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 937704
Samtals gestir: 49497
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 22:15:58