24.05.2015 22:30

Opið íþróttamót Þyts 2015

Verður haldið á Hvammstanga dagana 13 - 14 júní 2015


Skráning er í gegnum skráningakerfi Sportfengs, http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add Lokaskráningardagur er miðvikudagurinn 10.06.

Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.000 kr. Fyrir börn og unglinga 2.000 kr. Í skeiðgreinum og kappreiðar er skráningargjaldið 1500 kr á hest. Skráningargjöld greiðast inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 um leið og fólk skráir í gegnum skráningakerfið og viðkomandi keppandi fer þannig inn á ráslista. 


Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

                      

Greinar:

1. flokkur: 4-gangur V1, tölt  T1 og fimmgangur F1

2. flokkur 4-gangur V2 og tölt T3

Ungmennaflokkur 4-gangur V2 og töt T3 (18-21 árs á keppnisárinu)

Unglingaflokkur 4-gangur V2 og tölt T3 (14-17 ára á keppnisárinu)

Barnaflokkur 4-gangur V5 og tölt T3 (10-13 ára á keppnisárinu) (í skráningakerfi Sportfengs, er fjórgangur V2)

 

Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni:  3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir. 

 

Einnig verða í boði eftirfarandi greinar:

Tölt T2 

Tölt T7

Fjórgangur V5 ( í skráningakerfi Sportfengs, heitir greinin: Opinn flokkur V2)

gæðingaskeið

100 metra skeið

200 metra Brokk

200 metra Stökk

 

Ef b úrslit verða í einhverjum greinum, þá komast 5 hestar sjálfkrafa í a úrslit og sjötti hesturinn bætist við a úrslitin, sem sigrar b úrslitin.

Ef þátttaka er ekki næg í einhverjar greinar áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður greinina. 


Mótanefnd

 

Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Þyts

Flettingar í dag: 1467
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2561
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 939356
Samtals gestir: 49514
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 10:47:36