20.02.2017 09:57

Firmakeppni 2017


Hestmannafélagið Þytur heldur sína árlegu firmakeppni laugardaginn 4. mars nk. og hefst hún klukkan 14:00

Keppt verður í 5 flokkum,  polla, barna, unglinga, karla og kvennaflokki og veitt verða verðlaun fyrir 3.efstu sætin í hverjum flokki nema í pollaflokki þar sem allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

Við hvetjum alla til að mæta vel skreyttir og eiga skemmtilegan dag saman.

Búningaverðlaun verða veitt í barna, unglinga, karla og kvennaflokki.

Boðið verður upp á pylsur, skúffuköku, kaffi og djús á staðnum J

Eins og fyrri ár verður skráning keppenda í firmakeppnina á staðnum og því gott að vera komin stundvíslega.

 

Firmakeppnisnefnd

Flettingar í dag: 410
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 1500
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 957995
Samtals gestir: 50181
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 04:06:27