14.04.2017 16:14

Þytsmenn takið daginn frá fyrir úrslitakvöld

Þá er að koma að skemmtilegu úrslitakvöldi, Þytsmenn fjölmennum til að styðja okkar knapa. 

G. Hjálmarsson Áhugamannadeild & Æskulýðsdeild Akureyrar, Húnvetnska liðakeppnin og Skagfirska mótaröðin munu keppa á úrslitakvöldi. 

 

Komið og sjáið bestu knapa og hesta úr hverri deild í 2. flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki etja kappi á skemmtilegu móti þar sem einungis eru riðin úrslit.

Mótið verður haldið í reiðhöllinni Svaðastöðum, miðvikudaginn 19. apríl n.k. Keppnin hefst kl. 18:30.

 

Keppt verður í a- og b-úrslitum í 2. flokki Í fjórgangi og tölti og a-úrslitum í  fimmgangi og skeið í gegnum höllina.

 Keppt verður í a-úrslitum í ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki í tölti og fjórgangi.

 

í 2. flokki í fjórgangi og tölti eru fjórir efstu knaparnir í hverri deild búnir að vinna sér inn þátttökurétt, Tveir í a-úrslit og tveir í b-úrslit. 

Í fimmgangi í 2.flokki, skeiði 2.flokki, tölti og fjórgangi í barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki eru tveir efstu knaparnir í hverri deild búnir að vinna sér inn þátttökurétt í a-úrslit. 

Dagskrá:

 

B-úrslit fjórgangur 2.flokkur

A-úrslit fjórgangur barna

B-úrslit tölt 2.flokkur

A-úrslit fjórgangur unglinga

 

 

Hlé

 

A-úrslit fjórgangur 2.flokkur

A-úrslit fjórgangur ungmenna

A-úrslit fimmgangur 2.flokkur

 

Hlé

A-úrslit tölt barna  

A-úrslit tölt unglinga

A-úrslit tölt ungmenna

A-úrslit tölt 2.flokkur

 

Hlé 

 

Skeið

Flettingar í dag: 889
Gestir í dag: 76
Flettingar í gær: 969
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 956974
Samtals gestir: 50130
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 15:06:50