06.08.2018 09:58

Framlengjum skráningarfrest á íþróttamótið

Stefnt er að því að halda mótið næstu helgi 11. - 12. ágúst, framlengjum skráningarfrestinn til miðnættis annaðkvöld, þriðjudagsins 7. ágúst. 
Sameina þarf einhverja flokki vegna dræmrar þátttöku, flokkarnir T3 og V2 í 2. flokki falla niður en þessir keppendur færast sjálfkrafa í V5 og T7 og verða að láta vita ef þeir vilja ekki taka þátt í þessum greinum.

Einnig vantar starfsfólk í allar stöður, þul, fótaskoðun, ritara hjá dómurum og í dómpalli. Ef einhver hefur tíma má hafa samband við Jónínu Lilju í síma 846-5284. Það er mikið um að vera næstu helgi svo ef ekki tekst að manna mótið fellur það um sjálft sig. 

Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.500 kr. Fyrir börn og unglinga 1.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 1500 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Greinar: 
4-gangur V2 og tölt T3 1. flokkur 
4-gangur V5 og tölt T7 2. flokkur 
4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu) 
4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu) 
4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu) (V2 í Sportfeng)
Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni: 3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir. 
5-gangur 1.flokkur F2
gæðingaskeið 
100 metra skeið

Mótanefnd


Flettingar í dag: 1382
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 4666
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 936710
Samtals gestir: 49492
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 13:07:47