03.11.2019 22:33
Uppskeruhátíð 2019
Uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtaka Húnaþings vestra.
Verður haldin hátíðlega laugardaginn 9. nóvember í Félagsheimilinu á Hvammstanga.
Frábær matur að hætti Þórhalls Magnúsar Sverrissonar
Á matseðlinum verður nautakjöt, lambakjöt og bernaiessósa með allskonar framandi meðlæti.
og skemmtun sem endar svo með dúndrandi dansiballi með strákunum úr Kókos og Hrafnhildi Ýr.
Húsið opnar kl. 19:30 og hátíðin hefst kl. 20:00 Miðaverð er 7900 kr.
Einnig verður selt sér inn á dansleikinn kl.23:00 við inngang fyrir litlar 2500 kr.
Miðasala fer fram dagana 4.-7. nóv. í Söluskálanum (sjoppunni) einungis hægt að borga með reiðufé.
Hægt verður að borga fyrir ósótta miða við inngang Félagsheimilisins á hátíðinni sjálfri.
Þau bú sem tilnefnd eru sem ræktunarbú ársins eru:
Bessastaðir - Efri-Þverá - Grafarkot - Höfðabakki - Lækjamót
Takið daginn frá og fögnum árinu saman :)
Nefndin