Fréttir
31.10.2008
Matseðillinn fyrir Uppskeruhátíðina annaðkvöld
Ef þú ert ekki búin/n að kaupa miða á Uppskeruhátíðina þá ertu alveg að verða of sein/n þar sem miðasölu lýkur á hádegi í dag. Pantanir í síma 451-2465 í Söluskálanum.
Meðseldin verður eins og áður hefur komið fram í höndum meistarakokksins, Þórhalls Magnúsar Sverrissonar.
Forréttahlaðborð þar sem meðal annars er boðið upp á:
Reyktan lunda, maltgljáð sjávarréttar terrina, kjúklingalifur með fíkjum í koníakslegi, egg að hætti bænda, Sirizzo pylsa, gráðostur, olívur, heitreyktur lax, piparrót og caviar. Sjávarréttarsalat, hreindýrapate með berjasultu, antipastó, brauð og aðrar kræsingar.
Aðalréttur:
Reykt andarbringa, hvítlauksmarinerað lamb, kartöflukúlur og margt fleira.
Eftirréttur:
Heit súkkulaðikaka, ís og marineraðir ávextir.
30.10.2008
Viðtalið

Fanney og Logi í nýju tamningaaðstöðunni
Mánaðarlega í vetur mun ég taka viðtöl við hestamenn í Húnaþingi og grafast fyrir um hvað fólk er að sýsla þessa dagana og hvaða hesta fólk er með á húsum hjá sér. Fyrstu viðmælendur mínir eru Fanney og Logi á Hrísum II.
Fanney og Logi keyptu í byrjun árs jörðina Hrísa II, þau fengu hana afhenta í maí og hafa verið að breyta hluta af 530 fermetra fjárhúsi í hesthús. Það verða 19 stíur í hesthúsinu, 13 einhesta og 6 tveggja hesta. Síðan ætla þau að nota 2/3 af 480 fermetra hlöðu sem reiðaðstöðu.
Ég ákvað að kíkja í Hrísa og heyra í þeim hljóðið því ekki er hægt að ná í þau í síma eða senda þeim e-meil.J
Hvenær er stefnt að því að fyrsta hrossið verði tekið inn í nýja hesthúsið á Hrísum?
Stefnan er að taka inn í byrjun nóvember.
Verður reisugildi?
Það er aldrei að vita
Hvað verðið þið með marga hesta á járnum í vetur?
Það verða 25 hross inni. 10-12 sem við eigum og afgangurinn verða hross frá öðrum.
Verðið þið með á innanhúsmótunum?
Já, við verðum örugglega með eitthvað til að taka þátt!
Af ykkar hrossum. hver eru efnilegustu hrossin sem verða í húsinu í vetur?
Við verðum með spennandi hross sem fara á fjórða vetur undan heimahestunum Órator, Gretti og Tvinna frá Grafarkoti og Sædyn frá Múla. Það verður gaman að sjá hvernig þau koma út, undan þessum hestum sem við þekkjum mjög vel og líkar vel við. En ætli við bindum ekki mestar vonir við brúnskjótta 4 vetra hryssu, fyrsta afkvæmið undan 1. verðlauna hryssunni Ásjónu hennar Fanneyjar og Órator. Eins líst okkur vel á bleika Hágangsdóttir sem fer á 4 vetur og Rauðskjótta Rauðskinnadóttir sem fer á 5 vetur. Þannig að við erum spennt fyrir vetrinum og höldum að við verðum bara ágætlega ríðandi.
Undan hvaða stóðhestum eru folöldin ykkar sem fæddust síðastliðið vor?
Við fengum þrjú undan Hóf frá Varmalæk og hestfolald undan Geisla frá Sælukoti.
Undan hvaða stóðhestum eignist þið folöld á næsta ári?
Við fáum tvö undan Álfi frá Selfossi, þrjú undan Gretti frá Grafarkoti, eitt undan Roða frá Múla og kannski eitt undan Klettsyninum Kufl frá Grafarkoti.
Takk fyrir Hrísabændur og gangi ykkur vel!
Fleiri myndir af nýja hesthúsinu má sjá í myndaalbúminu.
29.10.2008
Kvennareiðin 2008
Komnar inn fullt af myndum inn í myndasafnið frá Kvennareiðinni.
26.10.2008
LH þingi lokið
Tvær tillögur velgdu þingheima örlítið undir uggum. Var það tillaga Loga um að hestur sem missti skeifu í keppni væri sjálfkrafa úr leik, og tillaga Fáks um að ungmenni fengju að keppa upp fyrir sig í meistaraflokki. Tillaga Loga var samþykkt með breytingu en tillaga Fáks var felld. Einnig hitnaðu mönnum nokkuð í hamsi þegar rædd var tillaga Gusts um að félagsjakkar yrðu skylda. Tillagan var samþykkt með breytingu sem dró úr henni bitið.
Sigrún fékk flest atkvæði í varastjórn LH, 132 atkvæði.
Nánar verður fjallað um einstök mál hér á www.lhhestar.is á mánudag.
heimild: www.lhhestar.is
24.10.2008
VIÐ fengum æskulýðsbikarinn 2008!!!
Nú stendur yfir LH þing og á þinginu er æskulýðsbikarinn afhentur. Við val á handhafa æskulýðsbikars LH er horft til þess fjölbreytta starfs sem félögin hafa í boði fyrir börn, unglinga og ungmenni í sínu félagi.
Hestamannafélagið Þytur í Vestur-Húnavatnssýslu hlýtur æskulýðsbikar LH fyrir árið 2008. Er það einróma álit að æskulýðsstarfið í félaginu hafi verið til fyrirmyndar.
Sigrún Kristín Þórðardóttir, formaður Þyts, tók við bikarnum. Hún sagði að mikil alúð væri lögð í æskulýðsstarfið í félaginu. Hestakostur barnanna í Þyti væri ekki endilega alltaf sá besti yfir landið. En áhersla væri lögð á að finna hverjum knapa og hesti hlutverk og það væri aðalatriðið.
Innilega til hamingju með árangurinn ÆSKULÝÐSNEFND ÞYTS og allir hinir sem koma að starfinu. FRÁBÆR árangur!!!!
24.10.2008
Það styttist...
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún
og Hestamannafélagsins Þyts 2008
Hátíð í heimabyggð
Verður haldin laugardagskvöldið 1.nóvember
í Félagsheimilinu á Hvammstanga.
Matur, gleði og gaman.
Þessi frábæra skemmtun hefst stundvíslega kl 20:30
en húsið opnar kl 20:00 og það verður sko stemming.
Matseldin verður í höndum meistarakokksins, Þórhalls Magnúsar Sverrissonar Sigrúnarsonar.
Veislustjórar þetta árið eru okkar eigin Simmi & Jói.
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, sími 4512465 og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 29.október.
Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr 5500 matur, skemmtun og ball, en ef þú vilt hins vegar bara skella þér á dansleik með GHG og Ingibjörgu, sem hefst kl 00:00, þá kostar það litlar 2700 kr.
Enginn posi á staðnum!
Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins 2008 af Hrossaræktarsamtökum V-Hún.
Grafarkot - Lækjamót - Syðri Vellir
Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun .
Siggi prestur kom í fyrra og honum fannst svakalega gaman.
Þú þarft ekki að vera hestamaður
Þú þarft ekki heldur að vera prestur
Svo framarlega sem þú átt lausan dag, láttu sjá þig
Sjáumst nefndin.
Hrannar Haraldsson, gaufastu til að láta sjá þig!
24.10.2008
Borga borga borga...
20.10.2008
Dagatal Þyts 2009
Ef þið eigið fallegar myndir til að setja á dagatal Þyts, endilega sendi á mailið sigeva74@visir.is eða á kolbruni@simnet.is fyrir mánudaginn 27. okt. nk.
Myndirnar þurfa að vera í góðri upplausn.
16.10.2008
Uppskeruhátíð 2008

Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar Þyts verður haldin föstudaginn 31.október n.k. í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst hún klukkan 17.00
Við hvetjum alla til að mæta sem hafa verið með okkur á árinu í æskulýðsstarfinu og eiga með okkur skemmtilega stund.
Einnig ræðum við örlítið um komandi vetrarstarf.
Kveðja Æskulýðsnefnd Þyts

Aðalstyrktaraðili Þyts