Fréttir
30.12.2009
Reiðhöllin
Frábær hópur er búinn að vera að vinna upp í höllinni alla dagana milli jóla og nýárs. En það er mikið eftir og þess vegna ætlum við að hafa RISA vinnudag upp í höll nk laugardag, 2. janúar frá kl. 10.00. Eins og staðan er núna verðum við að halda vel á spöðunum svo að höllin verði tilbúin fyrir fyrsta mót liðakeppninnar.
Ef þið sjáið ykkur fært að mæta eru næg verkefni. Upplýsingar hjá Tryggva í síma 660-5825.
Stjórn Hvammstangahallarinnar.
Dagatal Þyts er einnig komið í sölu, það kostar 1.700.- Hægt að nálgast það hjá Þórdísi s. 867-3346, Kollu s. 863-7786 eða Evu s. 868-2740. Einnig er það til sölu á Pósthúsinu.
29.12.2009
Viðtal við Magnús Elíasson á Stóru Ásgeirsá
Magnús Ásgeir Elíasson bóndi á Stóru-Ásgeirsá tók við alveg örugglega 2007 eða 2008 af Elíasi og Siggu, foreldrum sínum. Magnús keypti smá sauðfjárstofn úr Þingeyjarsýslunni á bæ sem heitir Bjarnastaðir af bændunum þar þeim Halldóri og Elínu. Sá stofn er hyrntur, þær eru vel stuttar og svona massaðar eins og ég, sagði Magnús stoltur. Ári seinna keypti hann sér svo kollóttar ær af ströndunum, af bæjunum Heiðdalsá (báðum), Smáhömrum og svo Geststöðum. Kollóttu ærnar eru bæði lengri, háfættari og svolítið krúttlegri að mati Magnúsar. Magnús er kominn með heimasíðu http://asgeirsa.123.is/ endilega kíkið á hana.
En hér kemur viðtalið sem ég tók við hann.
1. Hvað áttu mörg hross sjálfur?
Ja... ég á orðið nokkur hross samt engan fjölda en ég á 2 geldinga, 8 merar, 1 folald og svo 1 graðhest. Þá held ég að það sé upptalið.
2. Á húsi hjá þér í vetur verða þetta aðallega þín hross eða ertu að taka mikið í tamningu fyrir aðra?
Þetta verður svona blandað bæði fyrir aðra, fyrir sjálfan mig og svo föður minn.
3. Hvernig finnst þér að vera orðinn fjárbóndi líka?
Þessari spurningu er mjög svo létt að svara. Sauðfé er hobbý fyrir mig. Það allavegana svona fyllir út í daginn fyrir mann, svo er mjög gaman að bara horfa á sauðkindina sér svona til dægrastyttingar.
4. Áttu eitthvað u. Meyvant?
Já ég á eitt folald lítur vel út og er ég búinn að skýra það og nafnið er Hástígur. Bara svona til vonar og vara ef að hann verður háfættari en faðir sinn.
5. Ertu með aðstoðarfólk í tamningunum?
Ekki eins og er nema stundum kemur gamli maðurinn, þá náttúrulega nota ég hann eins og ég get. En maður veit aldrei hvað maður gerir á nýu ári.
6. Stefnir þú hátt í Húnvetnsku liðakeppninni í vetur? Ertu með einhverja efnilega kandídata?
No comment. Nei ég hef ekki hugmynd um það. Ég verð með og vonandi á mér eftir að ganga svona þokkalega, en ég er slakur á kantinum og þetta kemur bara allt í ljós. En svona... ég ætla að gera betur en í fyrra og það er ágætt markmið. En landslið Víðidals verður trúlega bara með hreinræktaða víðdælinga þetta árið :)
7. Undan hvaða stóðhestum eignast þú folöld næsta vor? Óm frá Kvistum.
8. Stefnir þú með eitthvað á LM? Ja maður veit ekki það er eitthvað til sem hægt er að stefna með en annars kemur þetta bara í ljós.
9. Magnús nú ert þú stórbóndi, hvað finnst þér um íslenskan Landbúnað? Íslenski landbúnaðurinn þarf að vera til staðar, og til dæmis með mig að ef ég hefði ekki svona gaman af þessu þá væri ég að að gera eitthvað annað.
Núna var Magnús farinn að geispa í símanum (ég komst nefnilega ekki í heimsókn, svo langt niður í Víðidal af Vatnsnesinu) og mér fannst eins og ég þyrfti að poppa viðtalið örlítið upp og spurði hann því eftirfarandi spurninga:
10. Ertu búinn að kaupa þér örmerkingarskanna?
Nei, enda á ég svo fá hross að ég hlýt að þekkja þau.
11. Lýstu draumastúlkunni? Ég bara veit ekki hvernig hún lítur út, en það væri góður kostur ef drauma daman væri geðgóð, léttlynd og með long legs ;)
12. Hver er að þínu mati kynþokkafyllsti bóndinn í Víðidal? Ef maður á að segja alveg satt og svona út frá hjartanu, þá er það tvímælalaust ég, og þó væri víða leitað í Húnaþingi vestra.
13. Hvernig fannst þér skemmtiatriðin á Uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtakanna?
Mér fannst þau bara mjög góð nema það var of lítið gert grín af mér.
14. Hvenær ætlar þú að gefa út plötu með frumsömdu efni? Vonandi gerist það einhverntímann og planið er að það gerist áður en ég verð þrítugur... svo bíðiði spennt ...
15. Að lokum Magnús, ef þið feðgar væruð staddir niður í Kaupfélagi á miðjum degi og þar væru Gulli á Söndum og Ari á Skarfhóli alls naktir með gula uppþvottahanska á hausnum í eltingaleik og við hvert klukk myndu þeir segja ,,klukk þú ert hann", hvor ykkar feðga yrði meira hissa?
Magnús hugsaði sig örlitla stund um en fór svo að hlæja og sagði... ætli pabbi yrði ekki meira hissa en ég myndi vilja fá að vera með J Hesthúsið á Stóru-Ásgeirsá
29.12.2009
Helga Margrét íþróttamaður ársins 2009
Í þriðja sæti urðu jafnar með 14. stig þær Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir fyrir körfubolta
en helstu afrek Helgu Margrétar eru:
Tilnefnd voru til íþróttamanns USVH 2009:
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir fyrir körfubolta
Helga Margrét Þorsteinsdóttir fyrir frjálsar íþróttir
Helga Una Björnsdóttir fyrir hestaíþróttir
Ísólfur Líndal Þórisson fyrir hestaíþróttir
Ólafur Einar Skúlason fyrir frjálsar íþróttir
Tryggvi Björnsson fyrir hestaíþróttir
Innilega til hamingju með þetta kæru félagar og einnig þið hin flotta íþróttafólk
myndir frá valinu og Staðarskálamótinu eru á Hvammstangablogginu eða hér.
24.12.2009
GLEÐILEG JÓL
22.12.2009
Reiðhöllin
Vinnan við stúkurnar gengur vonum framar. Reiðhallarnefnd þakkar félagsmönnum vel unnin störf. Sumir hljóta að vera búnir að flytja lögheimilið sitt í höllina, búnir að vera svo duglegir.
Stefnt er að því að reyna að safna góðum hóp til að vinna á mánudagskvöldið 28 des og ná þannig af sér jólasteikinni.
Vonandi sjáum við sem flesta
Stjórn Hvammstangahallarinnar
22.12.2009
Hvar er draumurinn?? Hann er hjá Draumaliðinu!
Nú höldum við áfram að kynna til leiks nýja leikmenn sem skrifað hafa undir samning við Draumaliðið. Slegist hefur verið um sæti í liðinu en enþá eru nokkur laus pláss. Allir áhugasamir hafi samband við liðstjóra sem er í þessum töluðu að skrifa jólakort og horfir björtum augum til komandi tíðar.
Draumaliðið kynnir til leiks og bíður um leið velkomna til liðsins, þau....
Björn Einarsson
Birna Tryggvadóttir
Agnar Þór Magnússon
Kolbrún Grétarsdóttir
Þessi óvænti og skemmtilegi liðstyrkur okkar kemur vonandi til með að auka heldur á spennuna sem hefur myndast og glæða keppnina en meira lífi en síðasta ár. Ljóst þykir að keppnin verður hörð og því um að gera að vera með allar klær úti.
Um leið vill liðstjóri óska öllum liðsmönnum sínum
sem og velunnurum liðsins gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Með þökk fyrir síðasta ár og tilhlökkun til verkefna vetursins.
Hátíðarkveðja
Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir
16.12.2009
Áframhaldandi vinna
Frábært hvernig gengur með stúkurnar, þegar mest var voru amk 15 manns að störfum í einu. Við ætlum að taka lokatörnina núna fyrir jól og vinna annaðkvöld, föstudagskvöld og um helgina. Ef við erum áfram svona dugleg að mæta verður ótrúlega mikið búið á stuttum tíma. Myndir inn í myndaalbúminu.
Sjáumst sem flest næstu kvöld.
Stjórn Hvammstangahallarinnar
14.12.2009
Stúkan rýkur upp
14.12.2009
Hrókeringarnar halda áfram...
Ég, Indriði Karlsson liðsstjóri 2Good, liðs 2, vaknaði upp frá dvala eftir fréttina um óvæntan liðsstyrks liðs 1. Núna þyrfti ég að gera eitthvað til að styrkja hið fámenna en góða lið mitt. Ég áttaði mig svo á því hvað gera skyldi þegar ég keyrði niður afleggjarann að ættaróðalinu mínu Kollsá sl helgi og beint á móti mér hinum megin við fjörðinn blasti það við, BESSASTAÐIR. Ég hringdi í Jóa sem var ekki lengi að samþykkja öll rök mín um að koma til liðs við mæ tím (my team fyrir lengra komna í enskunni). Jóhann B Magnússon og fjölskylda eru gengin til liðs við lið 2. Bessastaðafjölskyldan mun styrkja það sem upp á vantaði í liðið og mun Jói að eigin sögn mæta enn sterkari í SMALANN en í fyrra.
Nóg af yfirlýsingum í bili
Indriði Karlsson
Liðsstjóri 1 í liði 2
14.12.2009
Vinna upp í reiðhöll
Núna er allt að gerast í höllinni, nokkrir duglegir aðilar eru búnir að vera alla helgina að setja upp undirstöðurnar fyrir stúkuna.
Í dag, mánudaginn 14 desember frá kl. 16.00 er svo vinnukvöld. Endilega mætum sem flest og drífum þetta upp.
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi í síma 660-5825
Stjórn Hvammstangahallarinnar



Aðalstyrktaraðili Þyts