Færslur: 2017 September

28.09.2017 11:57

Keppnisárangur ársins 2017



Við viljum biðja alla keppendur ársins 2017 hjá Þyt að senda inn keppnisárangur sinn á árinu. Koma þarf fram í hvaða flokki keppt var á hverju móti fyrir sig og aðeins eru gefin stig fyrir úrslitasæti. Senda upplýsingar til Pálma á netfangið palmiri@ismennt.is fyrir 15. október nk.


Stjórn Þyts

13.09.2017 09:11

Ráðstefna fagráðs og uppskeruhátíð hestamanna 2017




Kæru félagar og hestamenn nú styttist i árlega ráðstefnu fagráðs og Uppskeruhátíð hestamanna en báðir þessir viðburðir verða 28.okt.
Ráðstefnan verður í Harðarbóli (félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ og hefst kl 1230. Margt spennandi verður á dagskránni sem verður kynnt betur þegar nær líður.
Uppskeruhátíð hestamanna verður sama dag 28.okt og að venju verður þetta glæsilegt kvöld þar sem rifjaður er upp árangur ársins og veittar fjölmargar viðurkenningar.
Við skulum eiga fróðlegan og skemmtilegan laugardag kæru félagar og fjölmenna á báða þessa viðburði !

Athugið að Hilton Reykjavík Nordica býður gestum uppskeruhátíðarinnar sérstakt tilboð á gistingu í takmörkuðu magni, svo fyrstur kemur fyrstur fær!
Tveggja manna herbergi í eina nótt kr. 19.900 án morgunverðar. Hægt er að bæta við aukanótt fyrir aðeins kr. 15.900.

Tryggið ykkur bókun á tilboðsverði með því að senda tölvupóst á meetings@icehotels.is eða í síma 444-5029.

  • 1
Flettingar í dag: 429
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 1186
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 908206
Samtals gestir: 48712
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:34:01