Færslur: 2020 Maí

03.05.2020 10:43

Þytsheimar opna 4. maí


Reiðhöllin opnar aftur 4. maí nk, notendur þurfa að tryggja að nánd milli manna sé að minnsta kosti yfir tveir metrar. Einnig er nauðsynlegt að fara eftir þeim sótthreinsunaraðferðum sem boðaðar eru, spritta hendur, þvo sér vel og lágmarka alla snertifleti sem allra mest.
Frá 4. maí falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum sem iðka íþróttir innandyra svo hægt er að hefja allar æfingar á ný í barnastarfinu.

03.05.2020 09:43

Aðalfundur Þyts 2020

Aðalfundur Þyts verður haldinn miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00 á Sjávarborg. Hægt verður að panta sér mat og drykk á meðan fundi stendur, einnig verður KS deildin sýnt beint án hljóðs á meðan fundi stendur svo hægt verður að fylgjast með henni um leið. 
Í beinu framhaldi af aðalfundi Þyts verður aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu (ca. kl. 20.30)

Dagskrá:


1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Skýrsla stjórnar

3. Lagðir fram reikningar félagsins

4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga

5. Árgjald

6. Kosningar

a. Kosning stjórnar

- Þrír meðstjórnendur til tveggja ára

b. Tveir varamenn stjórnar til eins árs.

c. Tveir skoðunarmenn til eins árs

d. Tveir varamenn skoðunarmanna til eins árs

e. Sex fulltrúar á Héraðsþing USVH og sex til vara

7. Önnur mál.
  • 1
Flettingar í dag: 428
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 779
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 965993
Samtals gestir: 50570
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 08:20:42