06.08.2008 11:22

Bikarmót Norðurlands


Bikarmót Norðurlands 2008 í hestaíþróttum verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. ágúst nk. 


Um er að ræða sveitakeppni, þar sem keppt er í öllum helstu greinum hestaíþrótta. Í unglingaflokki er keppt í tölti (2) og fjórgangi (2) og í fullorðinsflokki er keppt í tölti (3),  fjórgangi (3), fimmgangi (3),  slaktaumatölti (2), gæðingaskeiði (3), og 100 m flugskeiði (3). 


Skráningargjald er kr. 35.000.- per/sveit og þarf að greiða áður en keppni hefst.

 

Dagskrá mun verða send út mjög fljótlega, einnig bendum við á heimasíðuna okkar: www.hringur.de 

 

Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 12. ágúst kl. 20:00. Skráingar skulu berast í tölvupósti á netfangið: bjarna@dalvik.is Taka þarf fram kennitölu knapa og IS númer hests.

 


Með von um að sem flestar sveitir sjái sér fært að mæta með gæðinga og gleði í farteskinu!

 

F. h. Hestamannafélagsins Hrings,

 

Bjarni Valdimarsson  8622242

Sveinn Torfason  8616907 

Við erum að kanna áhuga á því að fara með sveit frá Þyt á mótið þannig að ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á að fara, hafið þá samband við Sigrúnu í síma 660-5826
Flettingar í dag: 1142
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2561
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 939031
Samtals gestir: 49514
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 08:58:29