Mótaröð Þyts - V5"/>

06.03.2022 16:57


Mótaröð Þyts - V5

Næsta mót í mótaröð Þyts verður sunnudaginn 13. mars nk kl. 13.00 í Þytsheimum á Hvammstanga, og verður að vera búið að skrá kl. 21.00 föstudaginn 11. mars. Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs.

 

Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki, unglingaflokki og barnaflokki. Pollar skrá sig einnig til leiks.

Keppt verður í fjórgangi V5 í öllum flokkum. Er á bls 83 í lögunum https://www.lhhestar.is/static/files/Log_LH/log2021/nytt-skjal-heildarlog-birt-mai2021.pdf 

 

Slóðin inn á skráninguna er: Sportfengur og farið undir mót. Skráningargjaldið er 3.500 fyrir fullorðna, 2.500 fyrir unglinga og 1000 fyrir börn. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.500 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. kt: 550180-0499 Rnr: 0159-15-200343 Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

 

Skvh er styrktaraðili mótsins og gefur kjöt í verðlaun.

 

Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 1182
Gestir í gær: 84
Samtals flettingar: 955180
Samtals gestir: 50001
Tölur uppfærðar: 17.4.2024 00:53:44