Um félagið

Félagssvæði Þyts er Vestur-Húnavatnssýsla. Félagið var stofnað 26. febrúar 1950, fyrsti formaður var Ámundi Jónsson Dalkoti og stofnfélagar voru 27. Núverandi formaður er Pálmi Geir Ríkharðsson og félagarnir eru 272. Félagsbúningurinn er svartur jakki með merki félagsins í brjósti, grænt bindi, hvít skyrta, hvítar reiðbuxur og svört reiðstígvél. Nafn félagsins er samkvæmt uppástungu Árna Hraundal og Pálma Hraundal að félagið yrði nefnt eftir hesti Jóseps Guðmundssonar frá Grafarkoti en hann var ættaður frá Bjarna Þorlákssyni í Kothvammi.


Stjórn félagsins:

Pálmi Geir Ríkharðsson, formaður s. 849-0752
Fanney Dögg Indriðadóttir, meðstjórnandi 865-8174
Kolbrún Grétarsdóttir gjaldkeri s. 894-4966
Eva-Lena Lohi, meðstjórnandi

Stella Guðrún Ellertsdóttir, meðstjórnandi 


Nefndir hestamannafélagsins

Æskulýðsnefnd:
 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir formaður, Matthildur Hjálmarsdóttir, Irina Kamp og Sigurður Björn Gunnlaugsson.

Firmakeppnisnefnd 2018: Aðalheiður Einarsdóttir formaður, Alma Lára Hólmsteinsdóttir, Helena Halldórsdóttir og Kristín Ólöf Þórarinsdóttir

 

Mótanefnd: Kolbrún Grétarsdóttir, Kolbrún Stella Indriðadóttir, Eva Dögg Pálsdóttir, Jónína Lilja Pálmadóttir, Herdís Einarsdóttir og Sigrún Eva Þórisdóttir.

Sýninganefnd: Kolbrún Grétarsdóttir, Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir, Helga Rós Níelsdóttir og Irina Kamp.
                                                                                
Reiðveganefnd:
Halldór Sigfússon s. 8916930 og Jóhannes Ingi Björnsson

 

Húnvetnska liðakeppnin: Sigrún Eva Þórisdóttir, Jóhanna Helga Sigtryggsdóttir, Jóhann Magnússon, Elvar Logi Friðriksson, Álfheiður Ösp Haraldsdóttir. 

Skemmtinefnd: Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir formaður s. 848-3639, Ísólfur L Þórisson, Sonja L Þórisdóttir, Gerður Rósa Sigurðardóttir, Fanney Dögg Indriðadóttir.

Mannvirkjanefnd: Ástmundur Agnar Norland, Hanný Norland Heiler

Þytsheimar: Tryggvi Rúnar Hauksson og Ragnar Smári Helgason
                        
Veitinganefnd: Jónína Sigurðardóttir formaður s. 895-2564, Jóhanna Ágústsdóttir og Laura Ann Howser
                          
Fræðslunefnd:
Sigrún Eva Þórisdóttir, Malin Person og Stine Kragh.

Ís-landsmót:  Pálmi Geir Ríkharðsson og Halldór P Sigurðsson.                           

 

 Lög hestamannafélagsins Þyts. 

 

 

 

1.gr. Nafn félagsins er Hestamannafélagið Þytur. Félagssvæði þess er Vestur Húnavatnssýsla.

        Heimili þess og varnarþing er heimili formanns.

        Félagið er aðili að LH og USVH  og er háð lögum og samþykktum þeirra.

 

2.gr. Tilgangur félagsins er að efla áhuga og þekkingu á hestamennsku og hestaíþróttinni á  

         sem breiðustum grundvelli . M.a með því að:

         a) gangast fyrir kennslu og þjálfun fyrir knapa og hesta.

         b) að efna til sýninga og keppni í hestaíþróttum.

         c) vinna að uppbyggingu og viðhaldi á mannvirkjum félagsins.

         

3.gr. Félagi getur hver orðið er þess óskar og er samþykktur af meiri hluta stjórnar félagsins.

 

4.gr. Stjórn félagsins skipa 5 menn kjörnir á aðalfundi til tveggja ára í senn. Formaður er 

        kosinn sérstaklega annað árið ásamt einum meðstjórnanda. Þrír meðstjórnendur kosnir   

        hitt árið. Stjórn skiptir að öðru leiti með sér verkum.

        Einnig eru kosnir tveir varamenn í stjórn til eins árs, tveir skoðunarmenn til eins árs

        ásamt 2 varaskoðunarmönnum.

 

5.gr.  Stjórn félagsins skipar starfsnefndir innan mánaðar frá aðalfundi. T.d. Fræðslunefnd, æskulýðsnefnd, reiðveganefnd, mannvirkjanefnd, mótanefnd og aðrar nefndir eftir því sem þurfa þykir.

 

6.gr   Stjórn félagsins ber að varðveita öll gögn sem geyma heimildir um störf félagsins.

         S.s. fundargerðir, félagaskrá, yfirlit yfir verðlaunagripi og gefendur þeirra. Stjórn er

         heimilt að skipa félagsmann utan stjórnar til þessara starfa.                                                       

 

7.gr.  Aðalfund skal halda eigi síðar en 31. mars ár hvert. Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins. Atkvæðisétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. 
Boða skal til aðalfundar með minnst viku fyrirvara og er fundurinn löglegur sé löglega til hans boðað.        

          
Á aðalfundi skal tekið fyrir:

         1. Kosinn fundarstjóri og fundarritari.

         2. Formaður flytur skýrslu stjórnar.

         3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar.

         4. Lagabreytingar ef um slíkt er að ræða.

         5. Kosningar skv. 4. gr.

         6. Kosningar á þing USVH og LH þegar við á.

         7. Önnur mál.

Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum allra mála nema þegar um lagabreytingar er að ræða sbr. 9.gr.

8.gr   Árgjald félagsins skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Greiði félagsmaður ekki árgjald sitt 2 ár í röð fellur hann út af félagaskrá og getur ekki orðið félagsmaður aftur nema að greiða skuld sína. Sá sem skuldar árgjald frá fyrra ári hefur ekki keppnisrétt á mótum sem félagið er aðili að. Varðandi úrtökumót fyrir Landsmót verður eigandi hests að vera skuldlaus við félagið.

9.gr.  Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf til þess 2/3 greiddra atkvæða. Lagabreytinga skal geta sérstaklega í fundarboði. Lögin skulu borin undir LH og USVH.

10.gr. Félagið verður aðeins leyst upp á löglega boðuðum aðalfundi tvö ár í röð og verður 2/3 fundarmanna að greiða því atkvæði. Verði félagið þannig leyst upp skal eignum þess komið fyrir í vörslu Húnaþings vestra þar til annað sambærilegt félag yrði stofnað í Vestur Húnavantssýslu.

 
11.gr.  Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

 

Flettingar í dag: 2599
Gestir í dag: 141
Flettingar í gær: 5158
Gestir í gær: 128
Samtals flettingar: 974284
Samtals gestir: 50856
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 10:06:07