Blog records: 2015 N/A Blog|Month_1
24.01.2015 19:22
Skemmtilegt námskeið um helgina
23.01.2015 11:52
Fyrirlestur hjá Susi
20.01.2015 00:58
Viðburðir í janúar - febrúar 2015
Hér á síðunni má sjá viðburðadagatal fyrir veturinn 2015: http://thytur.123.is/page/32926/
19.01.2015 13:37
Frumtamningarnámskeið 2015
Þórir Ísólfsson er þriðja árið í röð með frumtamningarnámskeið í Þytsheimum. Hér má sjá myndir frá fyrsta verklega tímanum, en sex nemendur eru á þessu námskeiði.
18.01.2015 23:13
Æskulýðsstarfið hefst á morgun
Á laugardaginn var Jósefína sótt en Gúndi ætlar að lána Júlíu hana í vetur í æskulýðsstarfið. Fjögur börn hafa fengið hross eftir félagsfundinn okkar í haust þar sem við störtuðum verkefninu ,,nýliðun í hestamennsku" þar sem félagsmenn taka ,,hestabarn" í fóstur algjör snilld !!
Dagskrá æskulýðsstarfsins:
Á mánudögum verður knapamerki frá kl. 15.00-15.45, síðan reiðþjálfun frá kl. 16.30 - 18.55.
Annan hvern þriðjudag verður TREC námskeið frá kl. 16.30 - 18.05
Á miðvikudögum eru hestafimleikar frá 15.15 - 17.15
Á laugardögum kl. 11.00 - 11.45 er knapamerki 4
Á sunnudögum kl. 11.00 - 12.00 er leikskólahópurinn
15.01.2015 13:11
Fyrirlestur með Susanne Braun (Susi)
Miðvikudagskvöldið 21. janúar nk verður fyrirlestur og sýnikennsla með Susanne Braun um hnykkingar, fyrirlesturinn hefst klukkan 19.00 og er til 22.00 í Þytsheimum. Verð er 2.000 fyrir félagsmenn en 3.000 fyrir aðra. Skráning hjá Evu á email sigeva74@hotmail.com, lokaskráningardagur 19.01 nk.
13.01.2015 12:54
Húnvetnska liðakeppnin 2015
Sjöunda mótaröðin að hefjast í Húnvetnsku liðakeppninni. Sömu reglur og í fyrra en nú bætist barnaflokkur við eins og rætt var um á félagsfundi í haust. Engin fyrirfram ákveðin lið eru skráð til leiks, skrá þarf öll lið inn í mótaröðina, tilkynna þarf liðin til mótanefndar í síðasta lagi fyrir lokaskráningardag fyrsta móts á netfangið thytur1@gmail.com ásamt liðsstjóra liðsins.
Dagssetningar fyrir mót vetrarins eru: 14. feb smali, 6. mars fjórgangur, 20. mars fimmgangur og tölt, 17. apríl tölt.
Reglur:
Liðakeppni:
1) Liðin þurfa að hafa nafn og sérkenni, þannig að liðsmenn þekkist.
2) Lágmark 3 í liði, ótakmarkaður fjöldi.
3) Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Einnig verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætlar að keppa í 1. 2. eða 3. flokki í upphafi tímabils.
4) 3 efstu knapar úr forkeppni telja til stiga fyrir hvert lið, stigin eru einkunnir hvers knapa. Hver knapi getur aðeins skilað stigum fyrir sitt lið fyrir 1 hest.
5) 3 efstu knapar sem komast í úrslit í hverju liði telja til stiga.
6) 1 sæti = 10 stig, 2 sæti = 8 stig, 3 sæti = 6 stig, 4 sæti = 4 stig, 5 sæti = 2 stig, 6 sæti = 2 stig (ef B-úrslit), 7-10 = 1 stig
7) Ekki er nauðsynlegt að vera í liði til að taka þátt í mótaröðinni.
8) Flokkar; Barnaflokkur (börn fædd 2002 - 2005 ), unglingaflokkur (börn fædd 1998 - 2001), 3 flokkur, flokkur sem er ætlaður þeim sem eru að byrja að keppa eða hafa litla keppnisreynslu. 2 flokkur, fyrir þá sem hafa nokkra keppnisreynslu en eru ekki að stunda keppni að neinu ráði. 1. flokkur er ætlaður þeim sem eru mikið í keppni.
9) Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig.
10) Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum.
11) Smalinn: Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum.
Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK!
Stigin í smala inn í liðakeppnina í forkeppni eru þannig að 300 stig gefa 6 stig, 290 - 299 stig gefa 5,8 stig, 280 - 289 stig gefa 5,6 stig, 270 - 279 stig gefa 5,4 stig osfrv.
12) Einstaklingskeppni:
1.sæti - 10 stig
2.sæti - 8 stig
3.sæti - 7 stig
4.sæti - 6 stig
5.sæti - 5 stig
6.sæti - 4 stig
7.sæti - 3 stig
8.sæti - 2 stig
9.sæti - 1 stig
13) Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
Einnig ætlum við að leyfa pollum að taka þátt í mótaröðinni en þeir munu ekki keppa til stiga en spreyta sig í að koma inn á völlinn og fá því að öðlast smá reynslu.
Mótanefndin
Aðalstyrktaraðili Húnvetnsku liðakeppninnar
12.01.2015 08:58
Námskeiðin að byrja
Núna eru námskeiðin að hefjast í reiðhöllinni, fyrsta námskeið vetrarins var sl helgi. Fanney var þar með nokkra nemendur þar sem farið var yfir liðkunar- og styrktaræfingar sem notaðar eru til þess að bæta hestinn.
Markmið var einnig að bæta samskipti knapa og hests og fá góðar hugmyndir fyrir vetrarþjálfunina.
Fanney kennari
Áhugasamir nemendur á sýnikennslu hjá Fanney föstudagskvöldið sl.
Frumtamningarnámskeið hefst síðan í kvöld, 12. janúar í Þytsheimum og knapamerkjanámskeiðin byrja líka í dag.
Önnur námskeið fyrir krakka hefjast 19. janúar. Hægt er að fylgjast með dagskrá hallarinnar á heimasíðu hennar: http://hvammstangahollin.bloggar.is/
12.01.2015 08:49
Þorrablót 24. janúar nk
Ágæta hestafólk.
Ætlum að hafa upp í Þytsheimum ,,þorrablótið okkar" laugardagskvöldið 24. janúar nk, kl. 19:00 - 23:00. Hver kemur með sinn þorramat eða mat og drykk að eigin vali og eigum saman skemmtilegt kvöld í leik og spjalli, öll fjölskyldan.
Þar sem við þurfum að greiða leigu fyrir Þytsheima verður aðgangseyrir kr. 500, - 14 ára og eldri
Hvetjum alla til að mæta á þennan fyrsta viðburð ársins.
Sjáumst hress og kát !!!
(Það kom upp sú hugmynd á félagsfundinum að hafa firmakeppnina okkar sama dag og þorrablótið, enn ekki alveg komið á hreint hvort hún verði þennan dag eða seinna. Verður auglýst hér í vikunni !!!)
07.01.2015 13:35
Frumtamningarnámskeiðið hefst mánudagskvöldið nk 12.01.2015
05.01.2015 15:35
Járningar
Tek að mér járningar fyrir kr. 5000- per hross. Er búsettur á Akureyri, frekari upplýsingar hjá Kristjáni í síma 845-5461
- 1