Blog records: 2026 N/A Blog|Month_5

23.05.2026 05:24

Gæðingamót og úrtaka Þyts og Snarfara fyrir LM 2026

 
                                                                                                                                                                                    
      
 
 

 

Sameiginlegt Gæðingamót og úrtaka hestamannafélaganna Þyts og Snarfara fyrir Landsmót á Hólum 2026 verður haldin á Hvammstanga 6.- 7. júní.

Flokkar sem verða í boði eru, A - flokkur, B - flokkur, B - flokkur áhugamanna, A og B flokkur í ungmennaflokki, unglingaflokkur, barnaflokkur, pollaflokkur, gæðingatölt og 100 m skeið.

?? Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 2. júní inn á skráningakerfi Sportfengs www.sportfengur.com 

??Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka.

??Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 5.000 kr. og fyrir börn og unglinga 4.000 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 4.000 kr á hest.

??Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

?? Í Gæðingatölti verður opinn flokkur

??Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.

Kt: 550180-0499 Rnr: 0159 - 15 - 200343

13.05.2026 07:54

Reiðmaðurinn I á Hvammstanga í vetur

Ingunn Ingólfsdóttir kennir Reiðmanninn I á Hvammstanga í vetur

 

Það er ánægjulegt að fá Ingunni í hóp þeirra reiðkennara sem kenna við Reiðmanninn. Ingunn útskrifaðist með BS-gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu frá Háskólinn á Hólum árið 2022.

Um haustið hóf hún kennslu við skólann og kenndi þar fram að áramótum 2025. Þar vann hún með fjölbreyttum hópi nemenda og öðlaðist dýrmæta reynslu í kennslu og þjálfun hesta.

Í dag starfar Ingunn við tamningar, þjálfun hesta og reiðkennslu. Hún hefur einnig haldið námskeið víða um land þar sem áhersla er lögð á góða grunnvinnu, fagleg vinnubrögð og jákvæð samskipti manns og hests.

Margir muna eftir fallegu samspili Ingunnar og hestsins Hágangs frá Narfastöðum. Frá unga aldri hefur Ingunn verið í tengslum við dýr og byrjaði ung að láta kveða af sér á keppnisvellinum með góðum árangri.

Um Reiðmanninn I

Í Reiðmanninum I er lagður grunnur að öruggari og markvissari reiðmennsku. Nemendur læra að vinna með hestinn á skýran og hestvænan hátt með áherslu á jafnvægi, ásetu og samspil knapa og hests.

Farið er bæði í vinnu á baki og í hendi þar sem nemendur fá að sjá og skilja hvernig hesturinn bregst við ábendingum. Smám saman byggist upp betri stjórn, meiri tilfinning fyrir hreyfingu og dýpri tenging við hestinn. Jafnframt er farið í grunnatriði hestafræðinnar, svo sem hvernig hesturinn lærir, heilsu, fóður og skipulagða þjálfun.

Markmiðið er að byggja traustan grunn þar sem skilningur og reiðmennska vinna saman — og gera þig öruggari og meðvitaðri í allri vinnu með hestinn.

??? Umsóknarfrestur er til og með 5. júní.

Skráning og nánari upplýsingar:

https://endurmenntun.lbhi.is/reidmadurinn/

 
                                                                                                                           
 
  • 1
Today's page views: 479
Today's unique visitors: 10
Yesterday's page views: 634
Yesterday's unique visitors: 7
Total page views: 3073642
Total unique visitors: 98384
Updated numbers: 8.6.2026 07:10:03