Færslur: 2018 Desember
11.12.2018 10:31
Æskulýðsstarf Þyts veturinn 2019
Í boði verða eftirfarandi námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni:
· Reiðþjálfun - hentar vel minna vönum og yngri knöpum, kennd áseta, stjórnun og gangtegundir.
· Keppnisþjálfun - hentar vel þeim sem eru farnir að hafa vald á gangtegundum og stefna á keppni
Lagt verður upp með 10 skipti
Kennsla hefst 15.janúar 2019
Helgarnámskeið
Í vetur ætlum við að bjóða upp á helgarnámskeið í Trec og hindrunarstökki en það hentar vel fyrir þá sem vilja byggja upp gott samband við hestinn sinn í gengum þrautir og leiki.
Trec verður kennt í febrúar og hindrunarstökk í mars.
Ef einhver börnum langar að vera með en eiga ekki hest, endilega hafið samband við Æskulýðsnefndina og við getum hjálpað til við að útvega hesta.
Skráning á námskeiðin fer fram á e-maili: thyturaeska@gmail.com skráning fyrir 20. des
06.12.2018 13:22
Kort í höllina !!!
Gjald Þytsfélaga er 22.000.- og má greiða inn á 0159-05-403351 kt. 550180-0499, annars fá korthafar sendan greiðsluseðil í vetur.
Verðskrá vegna notkunar í Þytsheima er eftirfarandi:
Kort fyrir meðlimi Þyts 22.000 kr
Kort fyrir aðra 27.000 kr
Dagpassi 2.000 kr
Einkatími-klukkutími milli 14-16:30 og 20-24:00 5.000 kr
Einkatími-klukkutími milli 9-14 virka daga 3.000 kr
Einkatími-klukkutími um helgar 5.000 kr
Einnig er hægt að leigja, sal, eldhús og kaffiaðstöðu og hljóðkerfi og þarf að borga fyrir það aukalega.
Ekki er opið fyrir einkatíma á milli klukkan 16:30 - 20:00 á virkum dögum.
Stéttarfélagið Samstaða endurgreiðir 50% af íþróttakortum en þó að hámarki 8.000 kr á hvern félagsmann á hverju 12 mánaða tímibili. Einnig eru mörg önnur stéttarfélög að bjóða félagsmönnum sínum einhvers konar endurgreiðslu og því um að gera fyrir alla að kanna sinn rétt.
- 1