Blogghistorik: 2025 Länk

27.05.2025 20:47

Gæðingamót Þyts og úrtaka hestamannafélaganna Þyts, Snarfara og Neista !!!

Gæðingamót Þyts og úrtaka hestamannafélaganna Þyts, Snarfara og Neista fyrir Fjórðungsmót 2025 verður haldin á Hvammstanga 14. og 15. júní.

?? Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 10. júní inn á skráningakerfi Sportfengs www.sportfengur.com 

??Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. og fyrir börn og unglinga 3.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 3.500 kr á hest.

??Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

?? Í Gæðingatölti verður opinn flokkur

??Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.

Kt: 550180-0499 Rnr: 0159 - 15 - 200343

27.05.2025 18:20

Opna íþróttamóti Þyts frestað

Opna íþróttamóti Þyts hefur verið frestað til 18. og 19. júlí nk. vegna dræmrar þátttöku. Mótið verður haldið á Kirkjuhvammsvelli og skráning auglýst nánar þegar nær dregur. Þeir sem voru búnir að skrá mega senda tölvupóst á thytur1@gmail.com til að fá skráningargjald endurgreitt. 

Mótanefnd áskilar sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. Fyrir börn og unglinga 2.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 4.000 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Greinar:
4-gangur V2 og tölt T3 1. flokkur
4-gangur V5 og tölt T7 2. flokkur
4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu)
4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu)
4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu)
Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni: 3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir.
5-gangur 1. flokkur F2
Tölt T4 (einn flokkur)
Gæðingaskeið
100 metra skeið

 

05.05.2025 07:35

Opið íþróttamót Þyts 2025, ATH breytt dagsetning !!!

Opna íþróttamót Þyts verður haldið á Kirkjuhvammsvelli dagana 31. maí og 1. júní 2025. Skráningar skuli berast fyrir miðnætti mánudaginn 26. maí inn á skráningakerfi Sportfengs.

Mótanefnd áskilar sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. Fyrir börn og unglinga 2.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 4.000 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Greinar:
4-gangur V2 og tölt T3 1. flokkur
4-gangur V5 og tölt T7 2. flokkur
4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu)
4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu)
4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu)
Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni: 3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir.
5-gangur 1. flokkur F2
Tölt T4 (einn flokkur)
Gæðingaskeið
100 metra skeið

 

 

 

03.05.2025 19:05

Reynisbikarinn heim

Allur Reiðmannshópurinn á Hvammstanga með kennara sínum, Þorsteini Björnssyni.
 

Í vetur hefur 15 manna hópur hjá Þyti verið á endurmenntunarnámskeiðinu Reiðmaðurinn II frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Í lok námskeiðsins taka nemendurnir próf sem felst í því að þeir setja upp sýningu þar sem þeir þurfa að sýna allar gangtegundir hestsins síns og nokkrar æfingar sem þeir hafa lært á námskeiðinu. Tveir efstu úr prófinu fá svo að taka þátt í keppni um Reynisbikarinn á Reiðmannshelginni á Miðfossum. Sá dagur var í dag og voru það Eva-Lena Lohi og Gréta Brimrún Karlsdóttir sem unnu sér inn rétt til að taka þátt í þeirri keppni, sem er þá við tvo efstu nemendur úr námskeiðum hjá öðrum hestamannafélögum í landinu. Eva-Lena var á hesti sínum Draumi frá Hvammstanga og Gréta var á hryssu sinni Brimdísi frá Efri-Fitjum. Kennari hópsins var Þorsteinn Björnsson, sem jafnframt er kennari við Hólaskóla.

 
 

Það er skemmst frá því að segja að Eva-Lena vann keppnina í dag og kom því heim með Reynisbikarinn og Gréta varð í þriðja sæti. Það er því stoltur Þytshópurinn sem var á Miðfossum í dag.

 

Reynisbikarinn er nefndur eftir Reyni Aðalsteinssyni, sem hannaði og kom á koppinn þessu reiðmannsnámi. Hópurinn sem hefur verið við námið á Hvammstanga er gífurlega ánægður með kennsluna og árangur hennar og stefnir á að fara á lokanámskeiðið í haust, sem heitir Reiðmaðurinn III.

  • 1
Antal sidvisningar idag: 1278
Antal unika besökare idag: 78
Antal sidvisningar igår: 909
Antal unika besökare igår: 63
Totalt antal sidvisningar: 1971089
Antal unika besökare totalt: 88258
Uppdaterat antal: 5.6.2025 15:41:07