Færslur: 2017 Maí

26.05.2017 09:12

Völlurinn



Nú er búið að vera að vinna í vellinum og nú vantar okkur að fólk ríði völlinn og prófi til þess að við getum séð hvernig hann verður við það. Ef það eru einhverjar spurningar í sambandi við völlinn má endilega setja sig í samband við Pálma í síma 849-0752.

Stjórn Þyts

23.05.2017 10:42

Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir FM 2017


Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir FM 2017, verður haldið á Kirkjuhvammsvelli 10. júní nk


Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

 A-flokk gæðinga
 B-flokk gæðinga
 C- flokk gæðinga (bls 45 í reglunum og í Sportfeng er það undir annað, minna vanir)
 Ungmenni (18-21 árs á keppnisárinu)
 Unglingar (14-17 ára á keppnisárinu)
 Börn (10-13 ára á keppnisárinu)
 Skeið 100m
 Pollar (9 ára og yngri á árinu)

Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 6. júní inn á skráningakerfi Sportfengs http://skraning.sportfengur.com/ Mótanefnd áskilar sér rétt til að fella niður flokka ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.500 kr. Fyrir börn og unglinga 1.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 1500 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst. 
Vinsamlegast veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Þytsfélaga. Varðandi úrtökumót verður eigandi hests að vera skuldlaus við félagið. Sá sem skuldar árgjald frá fyrra ári hefur ekki keppnisrétt á mótum sem félagið er aðili að. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni, http://www.lhhestar.is/././lh_logogreglur_28032017_prent.pdf


Hlökkum til að sjá sem flesta, nánar auglýst þegar nær dregur.


Mótanefnd

03.05.2017 10:02

Fjórðungsmót Vesturlands

 

 

Eins og ykkur er kunnugt verður Fjórðungsmót Vesturlands haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júlí 2017.  Framkvæmdaaðilar mótsins eru hestamannafélögin fimm á Vesturlandi en auk þeirra eiga keppnisrétt á mótinu félagsmenn í hestamannafélögunum á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.

 Keppt verður í hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar þ.e. A og B-flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki 

Þá verður tölt opinn flokkur og tölt 17 ára og yngri.  Þá er stefnt að keppni í 100 m fljúgandi skeiði, 150 og 250 m skeiði.  Vegleg verðlaun verða fyrir fyrsta sætið í tölti og 100 m skeiði.   

Keppendur skrá sig sjálfir í tölt opinn flokk, tölt 17 ára og yngri og skeiðgreinar. 

Sýning á kynbótahrossum verður í umsjá RML en fjöldi þeirra verður þessi:

Stóðhestar 4 v., 5 v. og 6 v. verða 8 í hverjum flokki en 6 í flokki 7 v. og eldri eða samtals 30 stóðhestar.

Hryssur 4 v. verða 8, 5 v. verða 14, 6 v. verða 10 og 7 v. og eldri verða 6 eða samtals 38.

Samtals munu því 68 kynbótahross eiga rétt til að mæta á fjórðungsmótið.

Miðað er við að kynbótahross verði að lágmarki að vera í 25% eigu aðila sem á lögheimili á svæði þeirra hestamannafélaga sem eiga keppnisrétt á mótinu (Vesturland, Vestfirðir, Húnavatnssýslur og Skagafjörður). 

Þess skal getið að nú er verið að endurbyggja gömlu kynbótabrautina í Borgarnesi en margir hafa talað um að hún hafi á sínum tíma verið ein sú besta á landinu.  Stefnt er að því að prufukeyra hana á kynbótasýningu í byrjun júní.

Stefnt er að því að sem flestir geti fengið pláss fyrir sín hross í hesthúsum í Borgarnesi en einhverjir geta þurft að vera í næsta nágrenni.  Þó verður mikilvægt að þau hross sem lokið hafa keppni fari strax að lokinni keppni frá Borgarnesi þannig að rými verði fyrir þá sem eftir eiga að keppa.  Tekið skal fram að stefnt er að því að hvert félag sem eigi keppnisrétt á fjórðungsmótinu fái ákveðin hesthús til umráða og það verði síðan þeirra að ákveða um nýtingu á viðkomandi húsi/húsum þannig að einstakir keppendur eiga ekki sjálfir að útvega sér hesthúspláss í Borgarnesi.  Nánar verður tilkynnt um fyrirkomulag hvað þetta varðar síðar.    

Vekja má athygli á því að aðgangseyri verður mjög í hóf stillt eða 2.500 kr. og síðan getur hver og einn ákveðið hvað hann verður lengi á mótinu t.d. einn dag eða allt mótið.  Tjaldstæði með rafmagni verða á Kárastaðatúni (milli þéttbýlisins í Borgarnesi og mótssvæðisins).  Selt verður sérstaklega inn á tjaldstæðið og fyrir afnot af rafmagni.

 

 

  • 1
Flettingar í dag: 442
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 1186
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 908219
Samtals gestir: 48712
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:58:18