Færslur: 2018 Apríl

17.04.2018 20:18

Hestar fyrir alla - dagskrá



Sýningin okkar Hestar fyrir alla er á morgun í Þytsheimum kl 17.30. Í hléi verður grillveisla og smápítsur, sem er innifalið í miðaverðinu og frítt fyrir 12 ára og yngri. Miðaverðið er 2.000 kr.

Dagskrá

Opnun
1. Afkomendurnir
2. Bessastaðir
3. Ein Hoch auf uns!
4. Abel frá Flagbjarnarholti
5. Lækjamót
6. Gröf
7. Lið Sindrastaða
8. Litaland
9. Stine í söðli
HLÉ
10. Munsturreið krakkar
11. Helga Una
12. Grease lightning
13. Vinnukonurnar í Grafarkoti
14. Feðgar á ferð á feðgum
15. Svörtu folanir og Valkyrjurnar
16. Gauksmýri
17. Knapar ársins 2017

17.04.2018 12:22

Tiltekardagur Þyts og fundur um úrtöku

 

Hestamannafélagið Þytur auglýsir tiltekardag í hesthúsahverfinu fimmtudaginn 19. apríl n.k. Við hvetjum hesthúsaeigendur og aðra félagsmenn að taka til hendinni og fegra hverfið í sameiningu.

Um kvöldið kl. 19 boðar stjórn félagsins til fundar í félagshúsinu um framkvæmd úrtöku fyrir Landsmót í Reykjavík. Mikilvægt er að sem flestir mæti.

Eftir fundinn sameinumst við í þrif í reiðhöllinni. Dúndrandi stemning og margar hendur vinna létt verk.

Með sumarkveðju
Stjórn hestamannafélagsins Þyts

13.04.2018 10:27

Hestar fyrir alla!

 

Sýningin Hestar fyrir alla verður haldin í Þytsheimum 18.apríl næstkomandi, klukkan 17:30. Sýningin er mjög fjölbreytt og verða knapar allt frá leikskólaaldri og upp í fullorðinsár. Von er á vönduðum atriðum, allt frá ræktunarbúum yfir í sleðareið og fimleika á hesti. 


Verð á sýninguna er 2.000 kr, frítt fyrir 12 ára og yngri og er innifalið í verðinu grillveisla og smápítsur.

Við hlökkum til að sjá ykkur á skemmtilegri sýningu þar sem sjá má hversu fjölhæfur íslenski hesturinn er og hversu stórum hópi fólks hann hæfir.
 
Sýninganefnd og æskulýðsnefnd Þyts
 
 
 
 

10.04.2018 16:42

ÚRSLIT LOKAMÓTS HÚNVETNSKU LIÐAKEPPNINNAR

ÚRSLIT LOKAMÓTS HÚNVETNSKU LIÐAKEPPNINNAR

 

Pollaflokkur

Herdís Erla Elvarsdóttir og Ísó frá Grafarkoti

 

Barnaflokkur Tölt T7

 

    1. sæti Guðmar Hólm Ísólfsson og Daníel frá Vatnsleysu 7,25

    2. sæti Dagbjört Jóna Tryggvadóttir og Dropi frá Hvoli 6,75

 

Unglingar Tölt T3

 

    1. sæti Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Grágás frá Grafarkoti 6,50

    2. sæti Eysteinn Tjörvi Kristinsson og Þokki frá Litla Moshvoli 5,75

    3. sæti Margrét Jóna Þrastardóttir og Gáski frá Hafnarfirði 5,67

    4. sæti Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir og Kjarval frá Hjaltastaðahvammi 5,42

 

3. flokkur Tölt T7

 

    1. sæti Aðalheiður Sveina Einarsdóttir og Melrós frá Kolsholti 2 6,25

    2. sæti Ragnar Smári Helgason og Vídalín frá Grafarkoti 6,25

    3. sæti Jóhannes Ingi Björnsson og Þór frá Stórhól 5,63

    4. sæti Sigurður Björn Gunnlaugsson og Amor frá Fremri-Fitjum 5,25

    5. sæti Sigrún Eva Þórisdóttir og Freisting frá Hvoli 5,0

    6. sæti Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir og Dimma frá Holtsmúla 4,88

 

2. flokkur Tölt T3

    

    1. sæti Birna Olivia Ödquist og Ármey frá Selfossi 7.08

    2. sæti Eva Dögg Pálsdóttir og Stuðull frá Grafarkoti 6,67

    3. sæti Ásta Guðný Unnsteinsdóttir og Gljá frá Grafarkoti 6,0

    4. sæti Fanndís Ósk Pálsdóttir og Máni frá Melstað 5,92

    5. sæti Jóhann Albertsson og Stúdent frá Gauksmýri 5,92

    6. sæti Matthildur Hjálmarsdóttir og Frakkur frá Bergsstöðum 5,0

 

1. flokkkur Tölt T3

 

    1. sæti Kolbrún Grétarsdóttir og Stapi frá Feti 7,33

    2. sæti Jónína Lilja Pálmadóttir og Sigurrós frá Syðri-Völlum 6,75

    3. sæti Herdís Einarsdóttir og Gróska frá Grafarkoti 6,67

    4. sæti Bergrún Ingólfsdóttir og Gustur frá Kálfholti 6,67

    5. sæti Friðrik Már Sigurðsson og Valkyrja frá Lambeyrum 6,58

B-úrslit 1. flokkur

    6. sæti Jóhann Magnússon og Brana frá Þóreyjarnúpi 6,42

    7. sæti Elvar Lofi Friðriksson og Grámann frá Grafarkoti 6,33

 

Skeið 100 m

 

    1. sæti Guðjón Örn Sigurðsson og Lukka frá Úthlið 8,37sek

    2. sæti Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum 8,41 sek

    3. sæti Halldór Pétur Sigurðsson og Sía frá Hvammstanga 10,34 sek

 

NIÐURSTÖÐUR EINSTAKLINGSKEPPNI OG LIÐAKEPPNI

Barnaflokkur:

        1. sæti Dagbjört Jóna Tryggvadóttir 34 stig

        2. sæti Guðmar Hólm Ísólfsson 30 stig

        3. sæti Indriði Rökkvi Ragnarsson 22 stig

 

    Unglingaflokkur:

        1. sæti Rakel Gígja Ragnarsdóttir 36 stig

        2. sæti Eysteinn Tjörvi Kristinsson 31 stig

        3. sæti Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir 30 stig

        

    3. Flokkur:

        1. sæti Aðalheiður Sveina Einarsdóttir 30 stig

        2. sæti Ragnar Smári Helgason 24 stig

        3. sæti Eva-Lena Lohi 23 stig

 

    2. Flokkur:

        1. sæti Eva Dögg Pálsdóttir 25 stig

        2. Birna Olivia Agnarsdóttir Ödquist 20 stig

        3.-4. sæti Sverrir Sigurðsson 15 stig

        3.-4. sæti Pálmi Geir Ríkharðsson 15 stig

 

    1. Flokkur

        1. sæti Elvar Logi Friðiksson 30 stig

        2. sæti Kolbrún Grétarsdóttir 25 stig

        3. sæti Fanney Dögg Indriðadóttir 23 stig

 

 Lið kvenna  bar svo sigur úr býtum í heildarstigakeppninni.

Liðakeppnisnefnd vill sérstaklega þakka óeigingjarnt starf hjá starfsmönnum mótanna. Veitinganefndin stóð sig að sjálfsögðu frábærlega, og loks áhorfendur og keppendur sem létu sitt ekki eftir liggja.

Einnig fá aðalstyrktaraðilar liðakeppninnar kærar þakkir fyrir þeirra framlag.


SKVH Sláturhús er aðalstyrktaraðili Húnvetnsku Liðakeppninnar

Regulator Complete ÍS gaf verðlaun til allra keppenda í 1. sæti í fullorðinsflokkum á öllum mótum Húnvetnsku liðakeppninnar.

 

Liðakeppnisnefnd

 

 

06.04.2018 17:28

LOKAMÓT HÚNVETNSKU LIÐAKEPPNINNAR

 

 

 

Fjórða og lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður laugardaginn 7. apríl og hefst kl. 10:30 árdegis.

 

Við hvetjum alla til að koma í Þytsheima og skemmta sér með okkur.. Aðgangseyrir 500 krónur fyrir 12 ára og eldri.

Kaffinefndin verður að störfum eins og endranær og býður upp á heitan og næringarríkan hádegismat á góðu verði, og að sjálfsögðu annað góðgæti í munn og maga.

Minnum þá á sem enn eiga ógreidd skráningargjöld að greiða til að öðlast keppnisrétt.

kt: 550180-0499 

Rnr: 0159-15-200343

Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.

 

Dagskrá: 

 

100 M SKEIÐ - EF VALLARAÐSTÆÐUR ÚTI LEYFA !!!

Unglingar T3

3. flokkur T-7

2. Flokkur T-3

  1. Flokkur T-3    

 

Hádegishlé

 

Pollaflokkur 

B-úrslit 2. flokkur

B-úrslit 1. flokkur

Börn úrslit 

Unglingar úrslit

3. flokkur úrslit - allir keppendur

A-úrslit 2. flokkur

A-úrslit 1. flokkur

Verðlaunaafhending 

 

Ráslistar:

 

Skeið:

1 Jóhann Magnússon / IS2011255571, Fröken frá Bessastöðum 

2 Guðjón Örn Sigurðsson / IS2009288421, Lukka frá Úthlíð 

3 Halldór P. Sigurðsson / IS2008255224, Sía frá Hvammstanga 

4 Fríða Marý Halldórsdóttir / IS2003255224, Stella frá Efri-Þverá 

5 Kolbrún Grétarsdóttir / IS2003155501, Ræll frá Gauksmýri 

UNGLINGAR T-3

1 V Margrét Jóna Þrastardóttir Gáski frá Hafnarfirði 

2 H Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir Kjarval frá Hjaltastaðahvammi 

2 H Rakel Gígja Ragnarsdóttir Grágás frá Grafarkoti 

3 H Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Þokki frá Litla- Moshvoli 

3 H Margrét Jóna Þrastardóttir Smári frá Forsæti 

3. Flokkur T-7

1 V Sigrún Eva Þórisdóttir Freisting frá Hvoli 

1 V Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir Dimma frá Holtsmúla 2 

1 V Jóhannes Ingi Björnsson Þór frá Stórhóli 

2 H Aðalheiður Einarsdóttir Melrós frá Kolsholti 2 

2 H Sigurður Björn Gunnlaugsson Amor frá Fremri-Fitjum 

2 H Ragnar Smári Helgason Vídalín frá Grafarkoti 

2. FLokkur T-3

1 H Ásdís Brynja Jónsdóttir Keisari frá Hofi 

1 H Jóhann Albertsson Stúdent frá Gauksmýri 

2 V Matthildur Hjálmarsdóttir Frakkur frá Bergsstöðum Vatnsnesi 

2 V Eline Schriver Klaufi frá Hofi 

3 H Eva Dögg Pálsdóttir Stuðull frá Grafarkoti 

3 H Ásta Guðný Unnsteinsdóttir Gljá frá Grafarkoti 

4 H Fanndís Ósk Pálsdóttir Máni frá Melstað 

4 H Birna Olivia Ödqvist Ármey frá Selfossi 

  1. Flokkur T-3

1 H Kolbrún Grétarsdóttir Jaðrakan frá Hellnafelli 

1 H Jóhann Magnússon Brana frá Þóreyjarnúpi 

2 V Bergrún Ingólfsdóttir Gustur frá Kálfholti 

3 H Herdís Einarsdóttir Gróska frá Grafarkoti 

3 H Friðrik Már Sigurðsson Valkyrja frá Lambeyrum 

4 H Jónína Lilja Pálmadóttir Sigurrós frá Syðri- Völlum 

4 H Elvar Logi Friðriksson Grámann frá Grafarkoti 

5 H Kolbrún Grétarsdóttir Stapi frá Feti 

 

SKVH Sláturhús er aðalstyrktaraðili Húnvetnsku Liðakeppninnar.

Regulator Complete ÍS gefur verðlaun til allra keppenda í 1. sæti í fullorðinsflokkum á öllum mótum Húnvetnsku liðakeppninnar.

03.04.2018 22:00

Aðalfundur Þyts 2018

Aðallfundur Þyts 26. Mars 2018.

 

Mættir:  Pálmi Geir Ríkarðsson, Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, Kolbrún Grétarsdóttir, Jóhann Albertsson, Sigríður Ólafsdóttir, Þorgeir Jóhannesson, Steinbjörn Tryggvason, Sigurður Björn Gunnlaugsson, Sigfús Ívarsson, Jónína Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Fanney Dögg Indriðadóttir, Herdís Einarsdóttir, Sofia Krantz, Þröstur Óskarsson, Jóhannes Ingi Björnsson, Helga Rós Níelsdóttir, Halldór Sigfússon, Tobbi, Matthildur Hjálmarsdóttir, Guðný Helga Björnsdóttir, Jóhann Magnússon og vinnumaður.

 

Pálmi setur fund og tilnefnir Steinbjörn Tryggvason sem fundastjóra og Guðrúnu Ósk Steinbjörnsdóttur sem ritara.  Það er samþykkt.  Steinbjörn tekur við stjórn fundar og bíður Pálma Geir Ríkarðsson að fara yfir skýrslu stjórnar.

 

Pálmi Ríkarðsson fer yfir skýrslu stjórnar. 

Sigríður Ólafsdóttir fer yfir reikninga félagsins.  Fyrsta árið sem Hagsæld sér um gerð ársreiknings.  Gjaldkeri segir það breytingu til batnaðar.

Spurt út í lið 7.  Töluverð aukning á ógreiddum félagsgjöldum og ógreiddum námskeiðum. Sigríður svarar þeirri fyrirspurn og bendir á að óvenju lítið var um ógreidd félagsgjöld í fyrra svo í ár eru þessu ógreiddu gjöld á pari við fyrri ár. 

Rætt um fjárhagsstöðu Þytsheima.  Stjórn ekki vel að sér í því og rætt um að þar megi betur fara.  Bent á að eðlilegt væri að ársreikningur Þytsheima væri lagður fram samhliða ársreikningum félagsins. 

Spurt út í skuld varðandi æskulýðsstarf.  Reikningar sendir seint út svo margir voru að borga eftir áramót.

 

Reikningar samþykktir.

 

Tillaga að hækka árgjald úr 4000 kr í 4500 kr.  Það er samþykkt.

 

 

Kosningar:

Sofia Krantz, Kolbrún Grétasdóttir og Friðrik Sigurðssons tilnefnd af stjórn félagsins sem meðstjórnendur til 2 ára.  Það samþykkt með lófaklappi.

Stjórn tilnefnir Fríðu Marý Halldórsdóttur og Þröst Óskarsson sem varamenn til eins ár.  Það er samþykkt með lófaklappi.

Skoðunarmenn til eins árs kosnir Jóhann Albertsson og Júlíus Guðni Antonsson.

Varaskoðunarmenn til eins árs kosnir Sigrún Þórðardóttir og Halldór Sigfússon.

Fundurinn felur stjórn að finna fulltrúa á USVH þing á næsta ári.

 

Önnur mál:

Pálmi ræðir um nefnd sem myndi taka að sér að sjá um mál reiðhallar og félagssvæðisins.  Mannvirkjanefnd.  Það hvílir mikið á fáum einstaklingum og þarf fleiri hendur til þess að létta undir.  Bent á að ekki hefur verið skipt niður vikum á korthafa varðandi þrif á reiðhöll og að læsa á kvöldin. Stjórn ætlar að ganga í málið og finna betri flöt á bæði þrifum og daglegri notkun reiðhallar.  Stjórn falið að skoða þetta mál frekar.

 

Spurt hvort einhver sé tilbúin að koma inn í stjórn reiðhallarinnar.  Pálmi veltir upp þeim möguleiki að stjórn hestamannafélagasins taki yfir stjórn reiðhallarinnar. 

 

Bent á að það væri skemmtilegt að bjóða til vinnukvölds og skemmtikvölds.  Reyna að virkja fólk betur í starfið. 

Spurt út í ræsi yfir ána svo hægt sé að komast yfir hana að vetri til.  Nefnd um það mál var starfandi fyrir tveimur árum og vann flottar hugmyndir sem virðast hafa gleymst hjá sveitarfélaginu.  Hesteigendafélagið ætti í raun að koma inn í þetta mál.

Stjórn skorar á Hesteigendafélagið að funda hið fyrsta og fara yfir mélefni félagsins og endurvekja það.

Spurt út í reiðvegamál.  Hvernig er viðhaldi þeirra háttað og hvenær er það hugsað? Viðhaldi ábótavant varðandi vegina sjálfa og girðingar.  Halldór Sigfússon svarar fyrirspurn og segir að þetta árið verður tileinkað viðhaldi.  Elsti hlutinn af reiðveginum verður tekin til skoðunnar í sumar. 

 

Rætt um girðingu meðfram Brandagili.  Þarf að yfirfara hana.  Halldór Sigfússon þakkar ábendinguna. 

 

Úrtaka fyrir Landsmót.  Formaður vill að úrtaka fari fram á gæðingakeppnisvelli.  Skiptar skoðanir á því hvað fólk vill.  Úrtaka ræðst svolítið af því hvað eigi að gera fyrir svæðið.  Rætt um hvort eigi að stækka völlinn.  Stjórn falið að skoða kostnað við stækkun á vellinum.  Bent á að úrtaka sé næstum hvert ár og mikilvægt að hross keppi á velli hliðstæðum þeim sem þau koma til með að keppa á stærri mótunum.  Einnig bent á að það séu áhorfendur að mæta sem myndu ekki annars koma ef við færum með úrtökuna annað. 

 

Pálmi þakkar þá sem víkja úr stjórn fyrir vel unnin störf og bíður nýtt fólk velkomið til starfa.  Sigríður Ólafsdóttir þakkar fyrir samstarfið og óskar nýrri stjórn velfarnaðar.  Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir tekur heilshugar undir.

 

Steinbjörn slítur fundi kl 22:03.

 

 

 

 

 

 

 

 

02.04.2018 21:47

Fjórða og lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar!!!

Fjórða og lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður laugardaginn 7. apríl, og verður að vera búið að skrá á miðnætti fimmtudaginn 5. apríl. 

Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs.

Ef vallaraðstæður leyfa verður keppt í 100 m. skeiði úti á skeiðvelli.

En keppt verður í  tölti T3 í 1., 2. og unglingaflokki og T7 í barna og 3. flokki. 

 

Mótið mun hefjast fyrir hádegi, en nánari tímasetning verður auglýst síðar.

 

Áður hefur verið auglýst að sameiginlegt lokamót verði með Skagfirðingum og Eyfirðingum 14. apríl en því miður er því lokamóti aflýst.

 

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir skráninguna, annars er slóðin þessi: http://skraning.sportfengur.com/ og farið undir mót. ATH, þeir sem ætla að skrá sig í 3. flokk velja ungmennaflokk. Sportfengur býður ekki upp á 3. flokk. 

Skráningargjaldið er 2.500 fyrir fullorðna og 1.500 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í Pollaflokk fer fram á staðnum.

Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.000 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

kt: 550180-0499 

Rnr: 0159-15-200343

 

Aðgangseyrir er 500 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

 

Mótsnefnd

SKVH Sláturhús er aðalstyrktaraðili Húnvetnsku Liðakeppninnar.

Regulator Complete ÍS gefur verðlaun til allra keppenda í 1. sæti í fullorðinsflokkum á öllum mótum Húnvetnsku liðakeppninnar.

 

  • 1
Flettingar í dag: 456
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 1186
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 908233
Samtals gestir: 48712
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 12:19:41