30.03.2007 19:17

Ný heimasíða hestamannafélagsins Þyts

Ákveðið var á aðalfundi Þyts að búa til heimasíðu fyrir félagið. Þá helst til að auðvelda auglýsingar til félagsmanna um t.d vinnukvöld. Einnig verður gaman að geta sett inn úrslit móta þannig að þessi síða verði eins konar heimildasíða fyrir félagið.
Á fundinum var einnig ákveðið að reyna að fá sem flest netföng hjá félagsmönnum þar sem við erum öll orðin svo netvæn og það auðveldar okkur að miðla upplýsingum til allra með mjög fljótlegum og ódýrum hætti.
Flettingar í dag: 4376
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 4219
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 2326949
Samtals gestir: 93169
Tölur uppfærðar: 15.9.2025 19:24:16