31.10.2009 19:16
Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar 2009

Þá er komið að Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar Þyts og verður hún haldin föstudaginn 6.nóvember n.k. á Cafe Sirop og hefst hún klukkan 17.00
Börnunum verður boðið upp á pizzur og drykki, en foreldrum er sjálfsagt að gæða sér líka á pizzahlaðborðinu fyrir hóflegt verð að sjálfsögðu.
Við hvetjum alla til að mæta sem hafa verið með okkur á árinu í æskulýðsstarfinu og eiga með okkur skemmtilega stund.
Kv. Æskulýðsnefnd
Skrifað af Tóta
Flettingar í dag: 1034
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 1742
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 2478355
Samtals gestir: 94072
Tölur uppfærðar: 6.11.2025 12:20:35
