08.08.2014 18:41

Opið íþróttamót Þyts 2014

verður haldið á Kirkjuhvammsvelli dagana 16 - 17 ágúst 2014

Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 12 ágúst á netfangið thytur1@gmail.com. Það sem koma þarf fram í skráningu er IS-númer hests, kt. knapa, hvaða grein er keppt í og uppá hvaða hönd. Mótanefnd áskilar sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þáttaka. Einnig ef lítil þátttaka verður þá verður mótið einn dagur. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.000 kr. Fyrir börn og unglinga 2.000 kr. og 500 kr. fyrir pollana fyrir skeið og kappreiðar er skráningargjaldið 1500 kr á hest. Skráningargjöld greiðast inn á reikning 0159-26-001081 kt. 550180-0499 í síðasta lagi fyrir kl 21:00 fimmtudaginn 14. ágúst annars ógildist skráningin og viðkomandi fer ekki á ráslista. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

                      

Greinar:

4-gangur V1 og tölt 1.flokkur T1

4-gangur V2 og tölt 2.flokkur T3

4-gangur V2 og tölt ungmennaflokkur T3 (18-21 árs á keppnisárinu)

4-gangur V2 og tölt unglingaflokkur T3 (14-17 ára á keppnisárinu)

4-gangur V2 og tölt barnaflokkur T3 (10-13 ára á keppnisárinu)

 

Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni:  3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir. Frjáls ferð á tölti.

 

5-gangur 1.flokkur F1

 

Tölt T2 1.flokkur

gæðingaskeið

100 metra skeið

200 metra Brokk

200 metra Stökk

 

 Mótanefnd

 

Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Þyts

 

 

Flettingar í dag: 801
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 3243
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 961629
Samtals gestir: 50299
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 05:55:08