12.01.2015 08:49
Þorrablót 24. janúar nk
Ágæta hestafólk.

ein gömul mynd af þorrablóti
Ætlum að hafa upp í Þytsheimum ,,þorrablótið okkar" laugardagskvöldið 24. janúar nk, kl. 19:00 - 23:00. Hver kemur með sinn þorramat eða mat og drykk að eigin vali og eigum saman skemmtilegt kvöld í leik og spjalli, öll fjölskyldan.
Þar sem við þurfum að greiða leigu fyrir Þytsheima verður aðgangseyrir kr. 500, - 14 ára og eldri
Hvetjum alla til að mæta á þennan fyrsta viðburð ársins.
Sjáumst hress og kát !!!
(Það kom upp sú hugmynd á félagsfundinum að hafa firmakeppnina okkar sama dag og þorrablótið, enn ekki alveg komið á hreint hvort hún verði þennan dag eða seinna. Verður auglýst hér í vikunni !!!)
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 622
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 2830
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 2471975
Samtals gestir: 93975
Tölur uppfærðar: 2.11.2025 09:44:54
