23.02.2017 15:47

Sýnikennsla og fyrirlestur með Súsönnu Sand


Súsanna Sand er að koma um helgina og verður með námskeið í Þytsheimum, einnig ætlar hún að vera með sýnikennslu og fyrirlestur á laugardeginum frá kl. 17.00. Á fyrirlestrinum ætlar Súsanna að fara yfir leiðarann fyrir íþróttadómara svo við hvetjum alla knapa sem ætla að keppa eitthvað á næstunni að mæta á þennan áhugaverða fyrirlestur. 

Viltu bæta burð og léttleika í hestinum þínum? 
Bæta ásetu, samspil, mýkt og þjálni? Bæta þitt jafnvægi, sem er grunnur að því að bæta jafnvægi og getu hestsins þíns.

Súsanna Sand er reiðkennari frá Hólum og hefur endurmenntað sig undanfarin ár í spænskri/portúgalskri reiðmennsku í Andalúsíu. Þar er lögð áhersla á líkamsbeitingu knapa og hests með áherslu á burð léttleika og þjálni, sem nýtist afar vel inn i okkar reiðmennsku.
Súsanna er einnig íþrótta og gæðingakeppnisdómari


Aðgangseyrir 1.000, frítt fyrir 17 ára og yngri, (enginn posi á staðnum).
Flettingar í dag: 402
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 994
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 2088292
Samtals gestir: 89553
Tölur uppfærðar: 10.7.2025 01:45:44