15.06.2017 14:21

ÁMINNING !!!



Þytur hefur rétt á að senda 7 fulltrúa á FM í hverjum flokki. Stjórn biður þessa knapa að staðfesta keppnisréttinn á thytur1@gmail.com fyrir miðnætti 16. júní nk. Mikilvægt er að senda kennitölu knapa og IS númer hrossa. Ef knapar þurfa einhverjar upplýsingar, er hægt að hringja í Pálma í síma 8490752. Þeir sem eru búnir að senda email þurfa ekki að senda aftur með kennitölu og IS. Það er búið að skrá þá inn !!!

Einnig ef það eru einhverjir sem vantar hesthúspláss sendið tölvupóst á thytur1@gmail.com fyrir 18/6, Þytur mun biðja um pláss fyrir keppendur. 

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að það verður aðeins útvegað hesthúspláss fyrir hross sem keppa á mótinu eða verða sýnd þar.

Hestar sem keppa t.d. í forkeppni á miðviku- eða fimmtudegi en komast ekki í úrslit þurfa að fara úr hesthúsum í Borgarnesi hafi þeir verið þar. Þetta er nauðsynlegt til að rýma fyrir hrossum sem koma síðar á mótið. Þess er því vænst að þessi hross fari til síns heima eða út fyrir Borgarnes og er það á ábyrgð umráðamanna þeirra að útvega pláss fyrir þau þegar hrossin hafa lokið keppni.

Flettingar í dag: 4304
Gestir í dag: 97
Flettingar í gær: 962
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 970831
Samtals gestir: 50684
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 14:08:51