28.05.2021 09:46

Úrtaka og gæðingamót


Hestamannafélögin Þytur og Neisti halda saman úrtöku fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í sumar í Borgarnesi. Þytur mun einnig hafa mótið sem sitt gæðingamót. Mótið verður haldið á Kirkjuhvammsvelli á Hvammstanga, dagana 12. og 13. júní nk.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

· A-flokk gæðinga

· B-flokk gæðinga

· C1 - flokk gæðinga (bls 47 í reglunum)

· Ungmenni (18-21 árs á keppnisárinu) Ungmennaflokkur og A flokkur ungmenna

· Unglingar (14-17 ára á keppnisárinu)

· Börn (10-13 ára á keppnisárinu)

· Skeið 100m

· Pollar (9 ára og yngri á árinu)

. Gæðingatölt í öllum flokkum.

 

Skráningar skuli berast fyrir miðnætti miðvikudaginn 9. júní inn á skráningakerfi Sportfengs http://skraning.sportfengur.com/

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.000 kr. og fyrir börn og unglinga 3.000 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 3.000 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.

Kt: 550180-0499

Rnr: 0159 - 15 - 200343

 

Við viljum minna á að þátttaka á mótinu er bundin aðild að hestamannafélögunum Neista og Þyt í barna-, unglinga- og ungmennaflokki og hross þurfa einnig að vera í eigu félagsmanna. En í A- og B-flokki þarf eigandi hestsins (keppandans) að vera í Neista eða Þyt. Fyrir hönd Þyts komast 6 inn í hverjum flokki og eru tveir vara hestar og er það forkeppnin sem gildir með hverjir komast inn á mót.

Flettingar í dag: 3486
Gestir í dag: 177
Flettingar í gær: 5158
Gestir í gær: 128
Samtals flettingar: 975171
Samtals gestir: 50892
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 23:10:03