20.03.2022 07:31

Vetrarmótaröð Þyts - T7, T4 og F2

                                                                              
                                                                                                                                                                Mynd: Árborg Ragnarsdóttir

 

Þriðja mótið í mótaröð Þyts verður sunnudaginn 27. mars nk kl. 13.00 í Þytsheimum á Hvammstanga, og verður að vera búið að skrá kl. 21.00 föstudaginn 25. mars. Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs.

 

Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki, unglingaflokki og barnaflokki í T7, einnig verður boðið upp á einn flokk í T4 og F2. Pollar skrá sig einnig til leiks.

Slóðin inn á skráninguna er: Sportfengur og farið undir mót. Skráningargjaldið er 3.500 fyrir fullorðna, 2.500 fyrir unglinga og 1000 fyrir börn. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.500 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. kt: 550180-0499 Rnr: 0159-15-200343 Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

Flettingar í dag: 839
Gestir í dag: 81
Flettingar í gær: 2706
Gestir í gær: 302
Samtals flettingar: 993161
Samtals gestir: 52608
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 06:42:18