28.03.2023 04:48

Lokamót Mótaraðar Þyts 2023

 

Lokamót í Mótaröð Þyts 2023 verður sunnudaginn 16. apríl nk kl 14.00 í Þytsheimum á Hvammstanga, og verður að vera búið að skrá á miðnætti fimmtudaginn 13. apríl. Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs. Keppt verður í T3 og fimmgangi 

Keppt verður í T3 í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki,  unglingaflokki og ætlum við að hafa núna þrígang í barnaflokki, sýna þá tölt, brokk og fet (pollaþrígangur í Sportfeng). Einnig verður keppt í fimmgangi opnum flokki Pollar skrá sig einnig til leiks.

Slóðin inn á skráninguna er: Sportfengur og farið undir mót. Skráningargjaldið er 3.500 fyrir fullorðna, 2.000 fyrir unglinga og börn. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.500 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. kt: 550180-0499 Rnr: 0159-15-200343 Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

Flettingar í dag: 683
Gestir í dag: 328
Flettingar í gær: 1146
Gestir í gær: 278
Samtals flettingar: 988098
Samtals gestir: 51820
Tölur uppfærðar: 6.5.2024 11:14:11