04.02.2026 08:48

Mótaröð Þyts 2026 - Fjórgangur

 

Annað mótið í Mótaröð Þyts 2026 verður 13. febrúar og hefst kl 18:00. Skráningu lýkur miðvikudaginn 11.02. 

Keppt verður í V2 í 1., 2. og unglingaflokki. Í V5 í 3. flokki og þrígangi í  barnaflokki. Pollar geta skráð sig til leiks, ef það eru margir pollar munum við skipta þeim upp í 2 hópa, þeir sem geta riðið sjálfir og hinn sem er teymt undir. Flott ef pollar sem er teymt undir skrái sig í hóp 1 og pollar sem geta riðið sjálfir séu í hóp 2 inn á Sportfeng.

Öllu er stjórnað af þul.

Slóðin inn á skráninguna er: Sportfengur og farið undir mót.  Skráningargjaldið er 4.000 fyrir fullorðna, 2.500 fyrir unglinga og börn. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 5.000 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. kt: 550180-0499 Rnr: 0159-15-200343 Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

Ráslistar munu birtast í Horseday appinu.

 

Þriðja mót í Mótaröð Þyts verður haldið laugardaginn 7. mars og verður þá keppt í fimmgangi og tölti. 

Flettingar í dag: 1739
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 1908
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 2701439
Samtals gestir: 95829
Tölur uppfærðar: 4.2.2026 11:29:20