07.03.2026 09:45
Knapar ársins 2025
Á aðalfundi Þyts sem haldinn var mánudagskvöldið 2. mars s.l. voru verðlaunaðir knapar ársins hjá félaginu í öllum flokkum. Það er óhætt að segja að félagsfólk hafi verið duglegt að keppa á árinu og var í sumum flokkum mjótt á munum. Fólk var duglegt að keppa á mótum hér heima og einnig á mótum hjá öðrum félögum og í hinum ýmsu deildum og stórmótum. Meira að segja átti félagið knapa á heimsmeistaramótinu sem varð í 2. sæti í sinni grein. Efstu knapar í hverjum flokki eru eftirfarandi og hlutu þau verðlaun frá félaginu fyrir afrekið:
Barnaflokkur: Herdís Erla Elvarsdóttir
|
||||
|
Unglingaflokkur: Kara Sigurlína Reynisdóttir
Ungmennaflokkur: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
3. flokkur: Þorgeir Jóhannesson
2. flokkur: Gréta Brimrún Karlsdóttir
Skeiðknapi ársins: Jóhann Birgir Magnússon
1. flokkur: Helga Una Björnsdóttir
|



