13.07.2026 19:42

Landsmót hestamanna 2026

Nú er nýlokið glæsilegu landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal. Það fóru 14 keppendur fyrir hönd Þyts og stóðu þau sig öll með miklum sóma. Fimm þeirra komust áfram upp úr forkeppni og þrír af þeim áfram í úrslit og tveir unnu sína grein, sem er einstakur árangur hjá okkar félagi.

Það var Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sem sigraði ungmennaflokkinn á hestinum Gretti frá Hólum og Guðmar sigraði einnig A-flokk ungmenna á hestinum Kalsa frá Þúfum. Jafnframt var Guðmari veittur Öder-bikarinn, farandbikar sem veittur er framúrskarandi pari, ungum reiðmanni og hesti hans. 

Sá þriðji af Þytsfélögum sem komst í úrslit var Pálmi Geir Ríkharðsson á hestinum Brynjari frá Syðri-Völlum. Urðu þeir í 11. sæti í B-flokki áhugamanna. Nýrri grein á Landsmóti, sem vonandi er komin til að vera.

Þeir sem fóru fyrir hönd Þyts á Landsmótið voru:

Barnaflokkur:

Sigríður Emma Magnúsdóttir á Abel frá Flagbjarnarholti. Þau komust áfram í milliriðil.

Gígja Kristín Harðardóttir á Sigursæli frá Hellnafelli.

Ýmir Andri Elvarsson á Austra frá Litlu-Brekku.

 

Unglingaflokkur:

Herdís Erla Elvarsdóttir á Grifflu frá Grafarkoti.

Kara Sigurlína Reynisdóttir á Mána Frey frá Keflavík

 

Ungmennaflokkur:

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Gretti frá Hólum. Þeir komust í milliriðil og urðu þar í 2. sæti og sigruðu svo A-úrslitin.

Ágústa Sóley Brynjarsdóttir á Krafti frá Hellnafelli.

 

A-flokkur ungmenna:

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Kalsa frá Þúfum. Þeir komust í milliriðil og urðu í 3. sæti þar og sigruðu svo A-úrslitin.

 

A-flokkur:

Teningur frá Víðivöllum fremri og Elvar Logi Friðriksson. Þeir komust áfram í milliriðil.

Frár frá Bessastöðum og Jóhann Birgir Magnússon

Hetja frá Bessastöðum og Jóhann Birgir Magnússon

 

B-flokkur:

Mói frá Gröf og Hörður Óli Sæmundarson

Röðull frá Gröf og Hörður Óli Sæmundarson

Megas frá Hvammstanga og Hörður Óli Sæmundarson

 

Þytur óskar keppendum og eigendum hrossanna innilega til hamingju með árangurinn allan. Við erum að rifna úr stolti yfir glæstum árangri.

 

 

Flettingar í dag: 505
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1504
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 3113922
Samtals gestir: 98821
Tölur uppfærðar: 14.7.2026 02:42:37