03.11.2007 15:53
Uppskeruhátíð Æskulýðsstarfsins
Knapar ársins í barna- og unglingaflokki. Rosalega gaman að sjá hvað það mættu margir á hátíðina í gær. Veittar voru viðurkenningar fyrir knapa ársins í barna- og unglingaflokki. Í barnaflokki var það Fríða Marý Halldórsdóttir sem stóð hæst á árinu og í unglingaflokki var það Jónína Lilja Pálmadóttir. Síðan voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku á námskeiðum ársins. Sparisjóður Húnaþings og Stranda styrkti félagið og gaf öllum krökkunum endurskinmerki til að setja á fæturna á hestunum svo allir sjáist nú í umferðinni.

Myndir má sjá hér.
Flettingar í dag: 203
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 1247
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 2472803
Samtals gestir: 93985
Tölur uppfærðar: 3.11.2025 02:38:37
