26.11.2012 21:52
Vöru- og sölukynning!
Þann 1. desember nk. verður vöru- og sölukynning í Þytsheimum frá kl. 13-18. Í boði verða vörur frá Prjónastofunni Kidka, Knapanum Borgarnesi og Mýranauti, svo verður dagatal hestamannafélagsins að sjálfsögðu til sölu. Einnig verður kynning á spæni frá Skógarvinnslunni ehf.
Hestavöruverslunin Ástund býður svo upp á hnakkamátun og prófun í reiðhöllinni þann 1.desember nk. frá klukkan 13-16. Guðmundur hjá Ástund gefur fólki tækifæri til að koma með eigin hest og prófa mismunandi hnakka og fá ráðleggingar um val á hnökkum.
Vinsamlegast pantið tíma á netfangið isolfur@laekjamot.is eða í síma 895-1146 (Vigdís) ef þið hafið áhuga á að nýta ykkur þetta frábæra tækifæri.
Hnakkarnir sem fólki gefst tækifæri til að prófa eru:



Ástund Winner

Ástund Royal
Endilega látið sjá ykkur í Þytsheimum á laugardaginn, það verður heitt á könnunni
.
Skrifað af Maríanna
Flettingar í dag: 1111
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 1742
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 2478432
Samtals gestir: 94072
Tölur uppfærðar: 6.11.2025 14:23:28
