04.05.2007 09:45

Fundur hjá Æskulýðsnefndinni



Góð mæting var á fyrsta fundinn hjá Æskulýðsnefndinni 1. maí sl. Boðið var upp á pylsur og gos!!!
Hátt í 60 manns mættu, foreldrar og börn. Ákvörðun var tekin um það að fara á sýninguna ,,Æskan og hesturinn" á Sauðárkróki sem haldin verður 17. maí. Eldri stelpurnar sem voru með atriði á Blönduóssýninunni fara með sitt atriði og síðan eru 17 börn í öðru atriði og eru það börn á aldrinum 6-17 ára.

Fyrsta æfingin var haldin strax eftir fundinn og útbúið var smá svæði á vellinum og löbbuðu krakkarnir og þjálfarar atriðið.

Gekk það bara vel!!!!
Flettingar í dag: 826
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 1319
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 983018
Samtals gestir: 51142
Tölur uppfærðar: 2.5.2024 07:26:33