Færslur: 2020 Júní

16.06.2020 13:15

Opna íþróttamót Þyts 2020


Opna íþróttamót Þyts verður haldið á Kirkjuhvammsvelli dagana 11. - 12. júlí nk. Skráningar skuli berast fyrir miðnætti miðvikudaginn 8. júlí inn á skráningakerfi Sportfengs http://motafengur.skyrr.is/Skraningkort.aspx?mode=add 
Mótanefnd áskilar sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.000 kr. Fyrir börn og unglinga 2.000 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 2.000 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Einnig vantar starfsfólk í allar stöður, þul, fótaskoðun, ritara hjá dómurum og í dómpalli. Ef einhver hefur tíma má hafa samband við Jónínu Lilju í síma 846-5284.

Greinar:
4-gangur V2 og tölt T3 1 flokkur
4-gangur V5 og tölt T7 2 flokkur
4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu)
4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu)
4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu)
Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu) Verkefni: 3 til 5 keppendur inn á vellinum í einu. Þulur stjórnar keppni, riðið að lágmarki 3 hringir.
5-gangur 1.flokkur F2
Tölt T2 1.flokkur
gæðingaskeið
100 metra skeið

Mótanefnd

08.06.2020 12:25

Vinnukvöld



Vinnukvöld næsta fimmtudagskvöld 11.júní kl. 20:00 við reiðvöllinn. Félagið aulýsir eftir fólki í mótanefnd og hvetjum við þá sem ætla að keppa í sumar að taka þátt í þessu skemmtilega starfi sem felst í því að halda mót. ALLIR þeir sem hafa áhuga hafi samband við Pálma.
  • 1
Flettingar í dag: 609
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 1500
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 958194
Samtals gestir: 50188
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 06:10:21