Færslur: 2026 Mars
21.03.2026 07:22
Smali lokamót Mótaraðar Þyts
Lokamót í Vetrarmótaröð Þyts er Smali og verður laugardaginn 4. apríl nk og hefst kl. 16.30, keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki og fullorðinsflokki 50 ára og eldri og 50 ára og yngri. Pollar auðvitað velkomnir að koma og keppa í smala.
Skráning í smala fer í gegnum netfangið thytur1@gmail.com og fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests (IS númer) og í hvaða flokki knapi keppir í. Skráningargjald er 2.000 í öllum flokkum nema pollaflokki er það 0. Millifæra má inn á reikning 0159 15 200343 kt 550180-0499. Lokaskráningardagur er föstudagurinn 03.04
Í barnaflokki þarf ekki að sækja veifuna á tunnunni eins og í hinum flokkunum og breyting miðað við myndina er að í síðustu ferðinni er farið undir 3 limbóstangir.
Reglur smalans:
Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa.
Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum.
Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK!
ATH. Við síðustu tunnu sem er í horninu fyrir lokaferðina, þar verður veifa ofan á tunnunni sem knapar þurfa að ná og taka með sér í mark.
Æskulýðsnefndin verður með sjoppu á meðan mótinu stendur en eftir mót verður hægt að kaupa grillað lambakjöt og meðlæti.
20.03.2026 11:24
Folalda og unghrossasýning HSVH 2026
![]() |
Þar sem það heppnaðist svo skemmtilega í fyrra þá ætlum við að endurtaka leikinn og halda folalda- og unghrossasýningu á Sindrastöðum þann 06. apríl 2026!
Sýningin er opin öllum og hægt er að koma með folöld og tryppi allt að þriggja ára aldri. Tilvalið tækifæri til að kynna t.d. efnilega ungfola!
Eins og í fyrra þá ætlar Eyþór Einarsson að dæma og verða niðurstöður skráðar á síðunni icefoal.com. Dæmt verður í flokki hestfolalda, merfolalda, ungfola og unghryssna. Einnig verður veitt verðlaun fyrir glæsilegasta tryppið sýningarinnar.
Öll folöld og tryppi verða að vera örmerkt og grunnskráð í Worldfeng til að eiga þátttökurétt!
Skráning fer fram í gegnum netfangið sonja@laekjamot.is og við skráningu þarf að koma fram IS-númer tryppis.
Skráningargjald er 2.500 kr. fyrir félagsmenn HSVH en 3.500 kr. fyrir aðra. Millifæra inn á reikning 0159-26-000992 kt. 6311882579 við skráningu.
Skráningu lýkur föstudagskvöldið 03.04.25 kl. 23.59.
Nánari upplýsingar varðar dagskrá og tímasetningu verða bætt við síðar.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Stjórn HSVH
08.03.2026 13:47
Niðurstöður í fimmgangi og tölti !!
Niðurstöður í fimmgangi og tölti í mótaröð Þyts. Mótinu var frestað um dag vegna slæms veðurs en tókst að halda það sunnudaginn 08.03.
![]() |
Pollum var skipt upp í 3 hópa, þeim sem var teymt undir, þeir sem riðu sjálfir og svo voru 10 ára og eldri í frjálsri reið. Ofsalega gaman að sjá hversu margir pollar og börn tóku þátt þar sem börn og unglingar sem keppa eru ansi fá. Framtíðin er björt.
Tölt T3
Fullorðinsflokkur - 1. flokkur
![]() |
A úrslit
1 Herdís Einarsdóttir Griffla frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 7,17
2 Hörður Óli Sæmundarson Brandur frá Gröf Rauður/milli-tvístjörnótt Þytur 7,06
3 Eva Dögg Pálsdóttir Tinna frá Stað Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,83
4 Jessie Huijbers Dögun frá Egilsstaðatjörn Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,56
5 Jóhann Magnússon Þekking frá Bessastöðum Þytur 6,50
6 Margrét Jóna Þrastardóttir Lyfting frá Höfðabakka Brúnn/milli-stjörnótt Þytur 6,17
Forkeppni
1 Herdís Einarsdóttir Griffla frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,77
2-3 Hörður Óli Sæmundarson Brandur frá Gröf Rauður/milli-tvístjörnótt Þytur 6,43
2-3 Jessie Huijbers Dögun frá Egilsstaðatjörn Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,43
4 Eva Dögg Pálsdóttir Tinna frá Stað Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,23
5 Jóhann Magnússon Þekking frá Bessastöðum Þytur 6,17
6 Margrét Jóna Þrastardóttir Lyfting frá Höfðabakka Brúnn/milli-stjörnótt Þytur 5,50
Fullorðinsflokkur - 2. flokkur
![]() |
A úrslit
1 Rakel Gígja Ragnarsdóttir Garún frá Grafarkoti Brúnn/milli-stjörnótt Þytur 7,50
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir Grein frá Sveinatungu Þytur 7,06
3 Greta Brimrún Karlsdóttir Snilld frá Efri-Fitjum Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,78
4 Eva-Lena Lohi Draumur frá Hvammstanga Brúnn/milli-skjótt Þytur 6,33
5 Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir Mynta frá Dvergasteinum Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,28
6 Sif Kerger Safír frá Efra-Langholti Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Skagfirðingur 6,11
B úrslit
![]() |
7 Jóhann Albertsson Kraftur frá Hellnafelli Rauður/milli-einlitt Þytur 6,06
8 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,89
9 Ragnar Smári Helgason Kilja frá Grafarkoti Rauður/milli-blesótt Þytur 5,83
10 Stella Guðrún Ellertsdóttir Lukku-Láki frá Sauðá Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,50
Forkeppni
1 Rakel Gígja Ragnarsdóttir Garún frá Grafarkoti Brúnn/milli-stjörnótt Þytur 6,97
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir Grein frá Sveinatungu Þytur 6,80
3 Greta Brimrún Karlsdóttir Snilld frá Efri-Fitjum Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,57
4 Greta Brimrún Karlsdóttir Brimdís frá Efri-Fitjum Bleikur/fífil-einlitt Þytur 6,17
5 Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir Mynta frá Dvergasteinum Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,07
6-7 Sif Kerger Safír frá Efra-Langholti Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Skagfirðingur 5,90
6-7 Eva-Lena Lohi Draumur frá Hvammstanga Brúnn/milli-skjótt Þytur 5,90
8 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,83
9-10 Ragnar Smári Helgason Kilja frá Grafarkoti Rauður/milli-blesótt Þytur 5,57
9-10 Jóhann Albertsson Kraftur frá Hellnafelli Rauður/milli-einlitt Þytur 5,57
11 Stella Guðrún Ellertsdóttir Lukku-Láki frá Sauðá Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,50
12 Magnús Ásgeir Elíasson Von frá Bjarnanesi Rauður/sót-einlitt Þytur 5,10
13 Óskar Einar Hallgrímsson Höfði frá Höfðabakka Rauður/bleik-stjörnótt Þytur 0,00
Unglingaflokkur
A úrslit
1 Kara Sigurlína Reynisdóttir Máni Freyr frá Keflavík Rauður/milli-tvístjörnótt Þytur 5,94
2 Herdís Erla Elvarsdóttir Garri frá Grafarkoti Rauður/milli-blesótt Þytur 5,78
Forkeppni
1-2 Kara Sigurlína Reynisdóttir Máni Freyr frá Keflavík Rauður/milli-tvístjörnótt Þytur 5,60
1-2 Herdís Erla Elvarsdóttir Garri frá Grafarkoti Rauður/milli-blesótt Þytur 5,60
Tölt T7 - 3. flokkur
![]() |
A úrslit
1 Nele Mahnke Spóla frá Brimstöðum Brúnn/mó-einlitt Skagfirðingur 6,25
2 Sigríður Margrét Gísladóttir Sædögg frá Múla Rauður/milli-skjótt Þytur 5,58
3 Þorgeir JóhannessonNóadís frá Áslandi Rauður/milli-blesóttglófext Þytur 5,50
4 Sigrún Eva ÞórisdóttirSending frá Hvoli Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,42
5 Kerstin Laila Kette Geisli frá Breiðabólsstað Rauður/milli-skjótt Þytur 4,92
Forkeppni
1 Nele Mahnke Spóla frá Brimstöðum Brúnn/mó-einlitt Skagfirðingur 5,93
2 Þorgeir Jóhannesson Nóadís frá Áslandi Rauður/milli-blesóttglófext Þytur 5,17
3 Sigrún Eva Þórisdóttir Sending frá Hvoli Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,10
4 Sigríður Margrét Gísladóttir Sædögg frá Múla Rauður/milli-skjótt Þytur 5,03
5 Kerstin Laila Kette Geisli frá Breiðabólsstað Rauður/milli-skjótt Þytur 4,70
6 Þorbjörg Vigdís Guðmundsdóttir List frá Sauðá Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,20
7 Freyja Ebba Halldórsdóttir Aron frá Litla-Hvammi I Brúnn/milli-einlitt Þytur 2,83
Barnaflokkur
![]() |
A úrslit
1 Gígja Kristín Harðardóttir Sigursæll frá Hellnafelli Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,08
2 Ýmir Andri Elvarsson Austri frá Litlu-Brekku Rauður/milli-einlittglófext Þytur 5,50
Forkeppni
1Gígja Kristín Harðardóttir Sigursæll frá Hellnafelli Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,10
2Ýmir Andri Elvarsson Austri frá Litlu-Brekku Rauður/milli-einlittglófext Þytur 5,53
Fimmgangur F2 - 1. flokkur
![]() |
A úrslit
1 Jóhann Magnússon Frár frá Bessastöðum Þytur 6,71
2 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,19
3 Rikke Jepsen Salka frá Seltjarnarnesi Jarpur/rauð-einlitt Ljúfur 6,05
4 Rabea Skrippek Dögg frá Þjóðólfshaga 1 Rauður/milli-einlitt Snæfaxi 5,74
5 Camilla Johanna Czichowsky Kjalar frá Ytra-Vallholti Neisti 5,38
Forkeppni
1 Jóhann Magnússon Frár frá Bessastöðum Þytur 6,23
2 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,07
3 Rikke Jepsen Salka frá Seltjarnarnesi Jarpur/rauð-einlitt Ljúfur 5,53
4 Rabea Skrippek Dögg frá Þjóðólfshaga 1 Rauður/milli-einlitt Snæfaxi 4,93
5 Camilla Johanna Czichowsky Kjalar frá Ytra-Vallholti Neisti 3,50
F2 - 2. flokkur
A úrslit
1 Greta Brimrún KarlsdóttirBrimdal frá Efri-FitjumBrúnn/milli-skjótt Þytur 6,40
2 Ásta Guðný Unnsteinsdóttir Gæla frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,12
3 Fríða Marý Halldórsdóttir Marel frá Hvammstanga Brúnn/milli-skjótt Þytur 5,76
4 Malin PersonErpur frá Syðra-Kolugili Jarpur/milli-einlitt Þytur 5,69
5 Anna Carina F. Rautenbach Fáfnir frá Hofi I Neisti 0,00
B úrslit
6 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,14
7 Jóhann Albertsson Vinur frá Eyri Bleikur/fífil-blesótt Þytur 5,07
8 Magnús Ásgeir Elíasson Dimmir frá Stóru-Ásgeirsá Brúnn/dökk/sv.einlitt Þytur 4,71
9 Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir Lokkur frá Blönduósi Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,69
10 Ingveldur Ása Konráðsdóttir Kolfreyja frá Hofi á Höfðaströnd Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,52
Forkeppni
1 Greta Brimrún Karlsdóttir Brimdal frá Efri-FitjumBrúnn/milli-skjótt Þytur 6,03
2 Anna Carina F. Rautenbach Fáfnir frá Hofi I Neisti 5,93
3 Ásta Guðný Unnsteinsdóttir Gæla frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,57
4 Fríða Marý Halldórsdóttir Marel frá Hvammstanga Brúnn/milli-skjótt Þytur 5,47
5 Malin Person Erpur frá Syðra-Kolugili Jarpur/milli-einlitt Þytur 5,23
6 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,23
7 Magnús Ásgeir Elíasson Rán frá Stóru-Ásgeirsá Brúnn/milli-einlitt Þytur 5,10
8 Jóhann Albertsson Vinur frá Eyri Bleikur/fífil-blesótt Þytur 4,83
9 Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir Lokkur frá Blönduósi Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,80
10 Magnús Ásgeir Elíasson Dimmir frá Stóru-Ásgeirsá Brúnn/dökk/sv.einlitt Þytur 4,73
11 Ingveldur Ása Konráðsdóttir Kolfreyja frá Hofi á Höfðaströnd Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,07
12 Eva-Lena Lohi Glitnir frá Galtanesi Brúnn/milli-einlitt Þytur 3,87
13 Ragnar Smári Helgason Rúrik frá Lindarbergi Rauður/milli-skjótt Þytur 3,60
![]() |
07.03.2026 08:45
Knapar ársins 2025
Á aðalfundi Þyts sem haldinn var mánudagskvöldið 2. mars s.l. voru verðlaunaðir knapar ársins hjá félaginu í öllum flokkum. Það er óhætt að segja að félagsfólk hafi verið duglegt að keppa á árinu og var í sumum flokkum mjótt á munum. Fólk var duglegt að keppa á mótum hér heima og einnig á mótum hjá öðrum félögum og í hinum ýmsu deildum og stórmótum. Meira að segja átti félagið knapa á heimsmeistaramótinu sem varð í 2. sæti í sinni grein, en það var Helga Una á hryssunni Ósk frá Stað í T2. Við viljum hvetja alla sem eru að keppa hjá félaginu að senda inn keppnisárangur sinn þannig að það verði kannski ennþá meira spennandi við næstu útreikninga.
Efstu knapar í hverjum flokki eru eftirfarandi og hlutu þau verðlaun frá félaginu fyrir afrekið:
Barnaflokkur: Herdís Erla Elvarsdóttir
|
||||
|
Unglingaflokkur: Kara Sigurlína Reynisdóttir
Ungmennaflokkur: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
3. flokkur: Þorgeir Jóhannesson
2. flokkur: Gréta Brimrún Karlsdóttir
Skeiðknapi ársins: Jóhann Birgir Magnússon
1. flokkur: Helga Una Björnsdóttir
|
03.03.2026 18:25
Dagskrá 3ja mótsins í Mótaröð Þyts
Mótið hefst klukkan 11.00 sunnudaginn 8. mars
Pollaflokkur - 3 hópar
Forkeppni og úrslit:
Barnaflokkur - T7
Unglingaflokkur - T3
Matarhlé
Forkeppni:
Fimmgangur - 2. flokkur
Fimmgangur 1. flokkur
Tölt T7 - 3. flokkur
Tölt T3 - 2. flokkur
Tölt T3 - 1. flokkur
Hlé 10 mínútur
Úrslit:
B úrslit fimmgangur 2. flokkur
Fimmgangur 1. flokkur
B úrslit tölt T3 - 2. flokkur
Tölt T7 - 3. flokkur
A úrslit fimmgangur 2. flokkur
Tölt T3 1. flokkur
A úrslit tölt 2. flokkur
01.03.2026 11:14
Áminning um aðalfund Þyts
Minnum á aðalfund Þyts sem verður í Þytsheimum annað kvöld, mánudaginn 2. mars kl. 20:00.
Til viðbótar venjulegum aðalfundarstörfum munum við verðlauna knapa ársins í öllum flokkum og tilnefna Þytsfélaga ársins. Svo eru stjórnarmeðlimir að hamast við að baka eitthvað með kaffinu.
- 1












