Færslur: 2026 Janúar

14.01.2026 12:45

Fyrsta mót - gæðingatölt

                                                                                           
 

Fyrsta mót vetrarins verður laugardaginn 24. janúar nk kl. 11.00 í Þytsheimum á Hvammstanga. Það þarf að vera búið að skrá á miðnætti miðvikudaginn 21. janúar. Skráning fer fram í gegnum skráningakerfi Sportfengs. Keppt verður í gæðingatölti í öllum flokkum. Pollar geta skráð sig til leiks, ef það eru margir pollar munum við skipta þeim upp í 2 hópa, þeir sem geta riðið sjálfir og hinn sem er teymt undir. 

Slóðin inn á skráninguna er: Sportfengur og farið undir mót. Keppt verður í  1. flokki, 2. flokki, 3. flokki,  unglingaflokki og í barnaflokki  Þeir sem skrá sig í 3 flokk, skrá sig í gæðingatölt ungmennaflokkur.

Skráningargjaldið er 4.000 fyrir fullorðna, 2.500 fyrir unglinga og börn. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng. Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 5.000 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. kt: 550180-0499 Rnr: 0159-15-200343 Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

Ráslistar munu birtast í Horseday appinu.

Næsta mót verður haldið föstudaginn 13. febrúar og verður keppt í V2, V5 og T4 og þrígangi í barnaflokki

  • 1
Flettingar í dag: 952
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 1099
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 2672738
Samtals gestir: 95443
Tölur uppfærðar: 22.1.2026 14:24:51