07.03.2026 08:45

Knapar ársins 2025

Á aðalfundi Þyts sem haldinn var mánudagskvöldið 2. mars s.l. voru verðlaunaðir knapar ársins hjá félaginu í öllum flokkum. Það er óhætt að segja að félagsfólk hafi verið duglegt að keppa á árinu og var í sumum flokkum mjótt á munum. Fólk var duglegt að keppa á mótum hér heima og einnig á mótum hjá öðrum félögum og í hinum ýmsu deildum og stórmótum. Meira að segja átti félagið knapa á heimsmeistaramótinu sem varð í 2. sæti í sinni grein, en það var Helga Una á hryssunni Ósk frá Stað í T2. Við viljum hvetja alla sem eru að keppa hjá félaginu að senda inn keppnisárangur sinn þannig að það verði kannski ennþá meira spennandi við næstu útreikninga.

Efstu knapar í hverjum flokki eru eftirfarandi og hlutu þau verðlaun frá félaginu fyrir afrekið:

Barnaflokkur: Herdís Erla Elvarsdóttir

 

Unglingaflokkur: Kara Sigurlína Reynisdóttir

 

 

Ungmennaflokkur: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal

 

3. flokkur: Þorgeir Jóhannesson

 

2. flokkur: Gréta Brimrún Karlsdóttir

 

 

Skeiðknapi ársins: Jóhann Birgir Magnússon

 

 

1. flokkur: Helga Una Björnsdóttir

 
Flettingar í dag: 1326
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 2169
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 2964470
Samtals gestir: 97763
Tölur uppfærðar: 23.4.2026 13:34:49