07.04.2008 22:49

Fimmgangsmót og tölt unglinga - Blönduósi

Föstudagskvöldið 11.04. kl. 20:00 verður keppt í tölti unglinga og fimmgangi í Reiðhöllinni Arnargerði.
Keppt verður í unglingaflokk í tölti en áhugamanna og opnum flokki í fimmgang. Skráningu sé lokið á fimmtudagskvöldið á netfanginu flaga72@simnet .is  eða í síma 8679785 eftir kl. 20:00.  Fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests, litur og aldur og upp á hvora hönd riðið er.
Röð gangtegunda í fimmgangi verður frjáls.

Skráningargjald hjá fullorðnum er kr. 1000 og kr. 500 hjá unglingum.

Nefndin.
Flettingar í dag: 1849
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 643
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 1906703
Samtals gestir: 87581
Tölur uppfærðar: 18.5.2025 09:39:54