12.03.2009 21:25
Riddarar Norðursins
Áskorendamót Riddara Norðursins
Laugardagskvöldið 14. mars kl.20.00
Mótið hefst á setningarathöfn þar sem Riddarar fara á kostum.
Að lokinni setningarathöfn munu úrslitin hefjast og búist er við magnaðri keppni.
Þar mætast stálin stinn í feiknalegri keppni um glæsilegan farandgrip.
Liðin sem skráð eru til leiks:
· Lið Þorbjörns Matthíassonar Liðstjóri er Lúlli sjálfur.
· Lið Narfastaða Liðstjóri Bjarni Jónasson.
· Íbisliðið Liðstjóri Magnús B Magnússon.
· Lið Vatnsleysu Liðstjóri Björn Jónsson.
· Lið Víðdælinga Liðstjóri Elvar Logi Friðriksson.
· Lið Riddara Norðursins Liðstjóri Lilja Pálmadóttir.
Keppnin er þannig að riðin verða úrslit á milli liðanna í fjórgang, fimmgang, tölti og skeiði.
Aðgangseyrir aðeins 1000. kr.
Gleði og söngur verður í anddyri reiðhallarinnar að móti loknu.Hvetjum sem flesta að koma í höllina og gleðjast með okkur.