01.06.2010 13:37
Endurgreiðslur til viðskiptavina Landsmóts
Við munum næstu daga ganga skipulega til verks við að endurgreiða, en bendum á að þar sem viðskiptin fóru að mestu leyti fram í gegnum
kreditkortaviðskipti í gegnum netmiðasölukerfi okkar, getur liðið einhver tími frá því að Landsmót kreditfærir og þar til eiginleg endurgreiðsla berst inná reikning viðskiptavinar. Við biðjum viðskiptavini Landsmóts að hafa þetta í huga og búa sig undir að greiðslur í gegnum kreditkortafyrirtæki berast ekki strax og gætu jafnvel borist í fleiri en einni greiðslu (dæmi: keypt er fyrir 48.000; greiðsla berst uppá 24.000 og nokkrum dögum síðar lokagreiðsla).
Ógerlegt er að taka við svo miklum fjölda símtala og því biðjum við þá sem vilja endurgreiðslu um að senda tölvupóst ásamt kvittun um kaupin á netfangið: landsmot@landsmot.is.
Þar sem fyrirhugað er að Landsmót verði haldið að ári (2011) er viðskiptavinum að sjálfsögðu í sjálfsvald sett hvort þeir vilji eiga miðana inni hjá mótshöldurum.
Öllum tölvupóstum verður sinnt skipulega en eins og áður sagði; fjöldinn er mikill og munu starfsmenn Landsmóts ganga vasklega til verks og leggja sig fram um að vera í góðu sambandi við viðskiptavini við að endurgreiða.
F.h. Landsmóts hestamanna ehf.
Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 1286
Gestir í dag: 82
Flettingar í gær: 2796
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 1418473
Samtals gestir: 74871
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:50:38