12.03.2012 23:04
Grunnskólamót
Grunnskólamót 18. marz - skráning!
Sunnudaginn 18. marz verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki og hefst mótið klukkan 13:00
Þar verður keppt í:
1. - 3. bekkur fegurðarreið
4. - 7. bekkur tví- eða þrígangur (óheimilt er að sami keppandi keppi í báðum greinum)
8. - 10. bekkur fjórgangur
8. - 10. bekkur skeið (ef veður og aðstæður leyfa)
Æskilegt er að skráningar berist fyrir kl. 23:00 á miðvikudag, 14. marz á netfangið thyturaeska@gmail.com
Við skráningu skal koma fram:
Nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.
Taka skal skýrt fram hjá 4. - 7. bekk hvort keppa á í tví- eða þrígangi.
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
XxXXXxxxXXXxX
§ Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu.
§ Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort á brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
§ Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
§ Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt,einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk.
Við reynum að útvega öllum far, þannig að þó svo að þið hafið ekki tök á að flytja hestana sjálf, en langar að keppa, hafið þá endilega samband við okkur.
Ef útreikningar okkar í nefndinni eru réttir, þá munar ekki nema einu stigi á okkur og Varmahlíðarskóla, sem er efstur. Þannig að nú söfnum við enn sterkara liði og gerum atlögu að bikarnum, er það ekki?!
Þe
Æ