13.04.2013 22:14
Síðasta Grunnskólamótið í vetur
Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra verður haldið
í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkóki 19. apríl
Grunnskólamótinu sem halda átti sunnudaginn 21. apríl í reiðhöllinni Svaðastaðir, hefur verið flýtt vegna annar viðburða sem koma inn á sunnudaginn og laugardaginn. Ákveðið hefur verið að halda það föstudaginn 19. apríl og byrja kl. 18:00. Þetta er þriðja og síðasta mótið í vetur og því spennandi að sjá hvaða skóli fer heim með bikarinn til varðveislu næsta árið!
Keppt verður í :
Fegurðarreið 1. – 3. bekkur —- Tvígangur 4. – 7. bekkur — Þrígangur 4. – 7. bekkur —
Fjórgangur 8. – 10. bekkur — Skeið 8. – 10. bekkur
Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudaginn 17. apríl. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda – bekkur – skóli – nafn hests, uppruni og litur – upp á hvora hönd er riðið. Skráningar sendist á thyturaeska@gmail.com
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum – kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Úr reglum keppninnar :
Fegurðarreið 1. – 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 – 3 keppendur inná í einu.
Tvígangur 4. – 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Þrígangur 4. – 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Fjórgangur 8. – 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur fegurðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk.
Skeið 8. – 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.
xx Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.
* Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.
—————
3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis.
4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar.
5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur
6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. – 7. bekk, verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum.
7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa.
8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti.
9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar.
10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur.
11. Í Tölti 4. – 7. og 8. – 10. bekk og Fjórgangi 8. – 10. bekk skulu riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16