20.01.2014 15:42
Tjarnartölt 2014
Frá mótinu í fyrra.
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur halda sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn laugardaginn 25. janúar nk og hefst mótið kl 12:30. Ísinn er spegilsléttur að sögn Jóhanns svo nú er um að gera að skrá á fyrsta mót ársins.
Keppt verður í tölti í 3 flokkum:
1. 1.flokki
2. 2.flokki
3. Barna og unglingaflokki.
5 keppendur í úrslit í öllum flokkum.
Riðið verður ein ferð á hægu tölti, 2 ferðir hraðabreytingar og 1 ferð hratt tölt.
Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 til 2010 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið.
Skráning á netfangið thytur1@gmail.com . Lokaskráningardagur er föstudagurinn 24. janúar, skráningargjald er 1.000.- fyrir fullorðna hver skráning en 500 hver skráning fyrir börn og unglinga. Skráningargjald má leggja inn á 0159-26-001081 kt. 550180-0499.
Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992
Hægt að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir.
Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri.
Ef fella þarf mótið niður vegna veðurs birtist það á heimsíðu Þyts á laugardagsmorgun.
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur