25.11.2014 09:51
Skýrsla æskulýðsnefndar 2013 - 2014
Æskulýðsstarf
Hestamannafélagsins
Þyts
Starfsskýrsla
2013-2014.
Æskulýðsnefnd
Þyts 2013-2014.
Guðný Helga
Björnsdóttir, formaður
Helga Rós
Níelsdóttir
Irena Kamp
Þóranna
Másdóttir
Þórdís Helga
Benediktsdóttir, tengiliður við stjórn
Uppskeruhátíð.
Þrettándagleði.
Fundir.
Nokkrir fundir voru haldnir á
starfsárinu, bæði foreldrafundir um starfið og nefndarfundir.
Reiðþjálfun og fimleikar
á hesti (voltigieren).
Mikill áhugi var á reiðþjálfun og
fimleikum á hesti. Um 60 börn á öllum aldri tóku þátt í reiðþjálfun, fimleikum
á hesti, reiðsýningu, keppni og Knapamerki í vetur. 2 unglingar luku prófi í
Knapamerki 1 og 6 luku prófi í Knapamerki 3. Fanney Dögg Indriðadóttir sá um reiðkennsluna
og Knapamerkin. Irina Kamp og Kathrin Schmitt sáu um fimleika á hesti. Þátttakan í reiðþjálfuninni var það mikil að
hóparnir voru sex, mislangt komnir krakkar í þeim og fengu þjálfun við hæfi
hvers hóps. Svo vorum við með þjálfun fyrir allra yngstu knapana, um hana sáu
krakkarnir í Knapamerki 3. Sú þjálfun var á laugardögum og komu foreldrarnir
með, því það þurfti að hjálpa sumum knöpunum, sem ekki voru háir í loftinu.
Á haustin fara hestafimleikarnir allir
fram í íþróttahúsinu á Laugarbakka. Þar var verið að æfa krakkana í
grundavallaratriðum fimleika og undirbúa þau undir að gera æfingar á lifandi
hesti.
Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra halda þrjú mót
yfir veturinn, sem þau kalla Grunnskólamót. Þá keppa krakkarnir fyrir þann
skóla sem þau eru í og safna stigum. Mótin voru haldin í Arnargerði á
Blönduósi, í Svaðastöðum á Sauðárkróki og í Þytsheimum hér á Hvammstanga. Góð
þátttaka var í þessum mótum. Þau eru byggð upp á því að allir geti tekið þátt
og æft sig í að keppa. Keppt er í þremur aldursflokkum. Elsti hópurinn 8. - 10.
bekkur keppa í tölti, fjórgangi, smala og skeiði. 4.-7. bekkur keppa í smala,
tölti, og tví- eða þrígangi. Í tvígangi sýna þau fet og tölt eða brokk, í
þrígangi sýna þau fet, tölt og brokk. Ekki þurfa þessi aldursflokkar að sýna
stökk, enda getur það verið erfitt fyrir lítið reynda knapa inni í
reiðhöllunum. Yngsti aldursflokkurinn í 1. - 3. bekk keppa í þrautabraut og
fegurðarreið. Þetta árið var vont veður þegar smalakeppnin fór fram á Blönduósi
þannig að Skagfirðingarnir komu ekki til keppni þá.
Sýningar.
http://thytur.123.is/photoalbums/259259/
Sumarið.
Krakkarnir og unglingarnir voru dugleg og að taka þátt í ýmsum keppnum í
sumar bæði í heimahéraði og nálægum héruðum. Þó eru þau ekki eins mörg sem taka þátt í
keppnum yfir sumarið eins og í reiðhallarmótunum á veturna. Þeim börnum og
unglingum sem komust á Landsmótið stóð til boða að fá leiðbeiningar og aðstoð
frá Fanneyju Dögg Indriðadóttur. Flottir fulltrúar frá okkar félagi mættu svo
galvaskir á Landsmótið og stóðu sig mjög vel í keppni þrátt fyrir úrhellis
rigningu og rok. Þau voru einnig fulltrúar Þyts í hópreiðinni og stóðu sig með
stakri prýði þar eins og ávalt.
Við í æskulýðsnefnd Þyts erum mjög ánægð með árið hjá okkur. Foreldrar hafa
verið mjög duglegir eins og áður að aðstoða við það sem þarf, enda gengi ekki
svona starf nema með virkum foreldrum því margir eiga um langan veg að fara til
að mæta á námskeið, æfingar eða keppni allan veturinn, einnig þurfa yngstu
þátttakendurnir digga aðstoð við að komast upp í hesthús og leggja á. Vonum við að starfið haldi áfram að blómstra
eins og verið hefur undanfarin ár.
Mikið af myndum er hægt að sjá úr starfinu í myndaalbúmi á heimasíðu Þyts:
thytur.123.is.
Kær kveðja
Æskulýðsnefnd
Þyts.